Sjómannadagsblaðið - 07.06.1942, Blaðsíða 42
22
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Jón BergsveinSson:
Þeir, sem aldrei ko mu aftur
í öllum löndum starfar fólk að því að fækka
slysum. Alls staðar eru þess háttar störf talin
fögur og eftirbreytnisverð. Fjöldi kvenna og
karia styður þau á ýmsa lund með fjárframlög-
um, vinnu og á annan hátt og hefir ánægju og
gleði af.
Hér á landi hafði reynslan sýnt mjög áþreif-
anlega, að slíkrar starfsemi var mikil þörf, eink-
um fyrir þá, er sjóinn sækja. Sérstakt félag var
stofnað í þeim tilgangi fyrir nokkrum árum —
Slysavarnafélag Islands. Félagið náði brátt vin-
sældum og útbreiðslu meðal almennings, starf-
semi þess virtist bera góðan árangur. Sjóslys-
unum fækkaði að verulegum mun, og eftir nokk-
ur ár var tala drukknaðra lækkuð úr 70 niður í
um 40 á ári. Starfsemi Slysavarnafélagsins var
að miklu leyti þökkuð breytingin.
Svo kom stríðið og með því margskonar áföll,
slys og hættur fyrir okkar þjóð eins og aðra, en
þó sérstaklega sjómannastéttina.
Síðan farið var að halda hátíðlegan sérstak-
an Sjómannadag, hefir Sjómannadagsráðið
helgað ofurlitla stund á degi þessum minningu
drukknaðra samherja frá liðnu ári. Á stofnári
Sjómannadagsins var deginum gefinn sérstakur
fáni með jafnmörgum stjörnum í og lögskráðir
sjómenn voru, er farizt höfðu á árinu næsta á
undan. Fyrsta árið voru stjörnurnar fáar í fán-
anum. Svo kom stríðið, þá urðu stjörnurnar
fleiri en áður. I fyrra voru þær 121. Hvað marg-
ar þær verða á næsta Sjþmannadegi er óvíst
ennþá.
Árið 1941 mun lengi verða í minnum haft
hér á landi, vegna margra og geigvænlegra sjó-
slysa. Alls létu lífið á árinu 139 lögskráðir ísl.
sjómenn, og af þeim má telja sennilegt að far-
izt hafi af hernaðarvöldum 122.
Frá því á fyrsta Sjómannadegi, 8. júní
1941 og til ársloka sama ár, hafa 60 íslenzkir
sjómenn, sem lögskráðir voru á skip, látið lífið
á hafinu. Skömmu eftir að Sjómannadagurinn
var haldinn, fórst e.s. ,,Hekla“ fyrir grimmdar-
æði hernaðarbrjálæðisins og með henni hurfu
í hafið 14 menn. Næst varð e.s. „Sessa“ fyrir
árás og var sökkt. Meðal skipshafnarinnar' voru
Minningarfáni Sjómannadagsins, eins og hann var af-
hentur deginum 1938. — Á síðasta Sjómannadegi voru
stjörnurnar í fánanum 121.