Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1942, Page 33

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1942, Page 33
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 13 Jörðin rifnaði. Japanir á sér kviðristu í mótmælaskyni á tröpp- unum hjá sendiherra Bandaríkjanna. Strax og við nálguðumst Yokohama, fórum við að sjá merki eyðileggingarinnar. Hvergi var hægt að leggjast upp að, allar bryggjur og hafn- armannvirki lágu hrunin í einni bendu, óhrund- ar byggingar sáust aðeins hér og þar á stangli. Það er álitið, að jarðskjálftarnir hafi átt upp- tök sín í Sagami Nada flóanum, en inn úr þeim flóa gengur Tokyo fjörðurinn. Innst í firðinum liggur höfuðborgin Tokyo, en vestan til í firð- inum er hafnarborgin Yokohama, og út við fjarðarmynnið sömu megin er flotastöðin Yoko- suka. Út á höfninni í Yokohama lá mikill skari af skipum frá flestum þjóðum heims. Öll afferm- ing varð að fara fram á bátum, nema á þeim skipum, sem hlaðin voru timbri, því var fleygt beint í sjóinn, þar sem urmull af Japönum var fyrir til að safna því saman og binda í fleka. Jafnskjótt og við höfðum varpað akkerum og skoðun hafði farið fram, vorum við umsetnir af aðgangsfrekum varningssölum, sem höfðu alls- konar djásn á boðstólum. Við fengum ekki að fara í land þennan fyrsta dag. í bítið morgun- inn eftir kom hópur af japönskum blaðamönn- um og alls konar sérfræðingum til að skoða skipið. Við vorum orðnir vanir því, að blaða- menn kæmu og skoðuðu skipið þar sem við komum og skrifuðu um það allskonar lof og veg- sömuðu það á ýmsan hátt og skipasmíði Dana, en japönsku sérfræðingarnir virtust beinlínis ætla að éta skipið í sig. Þeir þukluðu það og mældu hátt og lágt, og skriðu á maganum, þar sem ekki var komist öðruvísi. Dönsku yfir- mennirnir drógu ekki úr kostunum, og voru allir á hjólum framan í japönsku blaðamönnunum, en voru öllu stirðari við japönsku verkamenn- ina og lokuðu fyrir þeim öllum kömrum á skip- inu, en þeir hefndu sín grimmilega með því að ganga þarfa sinna hingað og þangað innan um lestina, þar sem þeir voru að vinna. Japanskir fyrirmenn klæðast að hvítra manna hætti, en verkamenn klæðast mest aðskornum bláum bómullarfötum, og sýndist manni helzt, að þeir væru allir á nærbuxunum með rúnaletur á bakinu. Þegar rigndi, vörpuðu þeir yfir sig hálmhettu, sem vatnið hripaði af. Þrátt fyrir hörmungarnar, voru þeir léttlyndir og virtust hinir mestu háðfuglar. Þegar í land kom, var ömurlegt yfir að líta, eyðileggingin var svo mikil, að víða stóð ekki steinn yfir steini. Hinar miklu stálbrýr og önnur stórkostleg mannvirki lágu eins og þeim hefði verið vöðlað saman, en alls staðar voru hendur að verki, til að hreinsa og undirbúa ný- byggingar. Maður undraðist einna mest, hvar þessi mannfjöldi gæti hafst við. Það var einna líkast og á Þingvöllum á Alþingishátíðinni 1930, mikið af fólki og lítið af húsum, en víða djúpar gjár og sprungur í jörðina. Víða gekk maður fram á fólk, sem hafði hreiðrað um sig á hinum Brýr og önmir rammgerð mannvirki hrundu.

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.