Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1942, Page 43

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1942, Page 43
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 23 Fremsta bls. í Minningarbók drukknaðra sjómanna, sem í eru rittið nöfn allra lögskráðra ísl. sjómanna, er drukknað hafa síðan 1938. 2 Islendingar. Því næst fórst ,,Jarlinn“ á leiS frá Englandi til íslands með 11 mönnum. Þá „Pálmi“ frá Siglufirði með allri áhöfn, 5 mönn- um. Maður féll út af bát frá Keflavík, annar af bát frá Vestmannaeyjum og sá þriðji af bát frá Hafnarfirði, eða 3 menn alls. Síðasta áfallið varð svo loks, er togarinn „Sviði“ fórst með allri áhöfn, 25 mönnum. Á því tímabili, sem liðið er af yfirstandandi ári, höfum við misst 21 mann: Hinn 16. janúar fórst pólska skipið „Wigry“. Af 27 manna áhöfn björguðust aðeins 2 menn. Allir hinir fórust, þar á meðal tveir íslendingar. Hinn 19. janúar tók brotsjór út mann af bát frá Akranesi, maðurinn drukknaði. Hinn 13. febr. sökk v.s. „Græðir“ eftir ásiglingu og einn mað- ur drukknaði. Hinn 20. febr. fórst bátur með einum manni frá Hofsós, annar drukknaði af dönsku flutningaskipi. Hinn 21. febr. drukkn- aði íslenzkur vélstjóri í skipakví í Englandi. Hinn 2. marz fórust 2 bátar frá Vestmannaeyj- um, „Þuríður formaður“ með fimm mönnum og „ófeigur“ með fjórum mönnum. Hinn 22. marz fékk m.b. „Brynjar“ E.A. 617 áfall skammt frá Sandgerði og missti þrjá menn. Hinn 9. april fórst erlent skip á leið frá Bíldudal til fsafjarð- ar, er á voru tveir íslendingar, leiðsögumaður og annar til. Lengra verður ekki sagan rakin að þessu sinni. Prentun blaðsins er þegar hafin og verð- ur því fyrst um sinn að vera ósvarað spurning- unni um það, hvort tala drukknaðra sjómanna á enn eftir að hækka á þeim vikum, sem eftir eru til næsta Sjómannadags. Framtíðin er okk- ur hulin, en með tilliti til hennar er það ósk okk- ar allra, sem land þetta byggjum, að ekki þurfi að þessu sinni að fjölga stjörnum Minningar- fánans fram yfir það, sem þegar er orðið, áður en sjómennirnir hefja hann að hún á næsta Sjó- mannadegi. Reykjavík, 16. apríl 1942. Sú stétt á sér fegurri framtíðarsvið — það fylgja henni vorboðar hlýir — er djarfhuga starfsþrótt, með dauðann við hlið, til drenglyndrar þjónustu vígir. F. H. L.v. Fróöi í Reykjavík eftir kafbátsárásina 10. marz ’hl.

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.