Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1942, Síða 58

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1942, Síða 58
38 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Jón Oddgeir Jónsson: Lífgun drukknaðra Nokkur dæmi úr daglega lífinu. Flestum er það nú ljóst, að ekki er það eitt nægjanlegt, þegar menn falla í sjó eða vatn, að ná þeim á land eða um borð í skipið, því að jafn- vel þótt maðurinn hafi ekki legið nema stutta stund í sjónum, getur hann litið út sem dauður væri, þegar honum er náð. Verður þá samstundis að gera lífgunartilraunir á hinum drukknaða manni, og sem betur fer eiga sjómenn nú al- mennt kost á því að læra lífgunartilraunir. Sem dæmi um það, hve hörmulega getur far- ið, ef enginn um borð kann lífgun drukknaðra, skal hér sagt frá atburði, sem skeði fyrir all- mörgum árum. „Sjómenn voru að draga lóðir úti á miðum. Logn var veðurs, en undiralda talsverð, svo að báturinn var ókyrr. Maðurinn, sem „goggaði af“, stóð nokkuð tæpt, og hann hrökk fyrir borð einu sinni er alda reið undir bátinn, en festist um leið á lóðaröngli rétt fyrir neðan borðstokkinn, en í kafi þó. Hann var dreg- inn inn svo að segja samstundis, því að hann var ekki faðmslengd frá borðstokknum. Þegar hann kom upp í bátinn, var hann lagSur uppí- loft; þeir héldu sig hafa séð hann eins og smá- geispa nokkrum sinnum (með öðrum orðum, hann var ekki dauður, en var að bera sig að draga andann, en gat það ekki betur en þetta), en svo hætttu þessir geispar, og þá töldu þeir hann dauðann, báru hann ofan í hásetaklefann, lögðu hann þar til, upp í rúmi, náttúrlega uppí- loft, gengu svo frá honum og héldu til lands, þriggja tíma ferð til læknis. Þegar þar kom, urðu allar lífgunartilraunir árangurslausar“. (Frásögn þessi er tekin úr grein, sem Davíð Scheving Thorsteinsson læknir skrifaði í ætti fyrir okkur að liggja að stunda sjómennsku og sízt, að Siggi mundi sigla með erlendum þjóð- um í mörg ár og deyja svo í fjarlægu landi fjarri ættjörðinni. drengjablaðið „Úti“ 1928, um lífgun drukkn- aðra.) Þegar þessi atburður skeði, var kunnátta sjó- manna í lífgunartilraunum mjög ábótavant. Mjög hefir breytzt til hins betra í þessum efn- um hin síðari ár, einkum vegna þeirrar kennslu, sem sjómenn hljóta í lífgunartilraunum á sjó- mannaskólanum, námskeiðum Rauðakrossins, Slysavarnafélagsins og hinum ýmsu námskeið- um, sem haldin eru fyrir véla- og fiskimenn. Að framför hafi orðið í þessum efnum sannar bezt eftirfarandi dæmi. Þ. 14. mars 1942 var m. b. Leifur frá Vestmannaeyjum á fiskveiðum milli lands og eyja. Um kvöldið féll maður fyrir borð. Myrkur var og sjóruddi. Tilraunir voru strax gerðar til þess, að ná manninum og tókst það loks eftir 10—15 mínútur. Var hann þá orðinn meðvitundarlaus. Maðurinn mátti heita ósynd- ur, en að hann flaut, var því að þakka, að loft var í sjóstakknum. Fleiri en einn af skipverjum kunnu lífgunar- tilraunir. Var því samstundis byrjað á þeim, og voru það þeir formaðurinn, Eyjólfur Gíslason og einn skipverja, Karl Ólafsson, sem fram- kvæmdu þær. Gekk þeim svo vel með lífgunina, að eftir 15 mínútur var sjúklingurinn farinn að anda af sjálfsdáðum. Var síðan hlúð að sjúklingnum eftir föngum og hresstist hann brátt. Álitið er, að hægt sé að endurlífga drukkn- aða menn hafi þeir ekki legið lengur en 5—10 mín. í vatni (og óneitanlega má margt gera á það löngum tíma, til tilraunar að ná mönnum), en líði lengur en ca. 15 mínútur, áður en þeim verði náð, eru litlar líkur til þess að þeir verði endurlífgaðir. Ótal undantekningar eru þó frá þessu, og séu menn ekki vissir um, hve lengi sá hefir legið í vatni, sem bjargað er, er sjálfsagt að hefja lífgunartilraunir, svo framarlega sem
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.