Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1951, Síða 23

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1951, Síða 23
Prófessor dr. Richard Bec\: Sjómannaskáldið Örn Arnarson Siglinga- og sjómannaljóð Arnar Arnarsonar skálds (Magnúsar Stefánssonar) hafa aflað honum slíkrar lýðhylli, að hann hefir um annað fram verið talinn skáld sjómanna. Er það mjög að verð- leikum, þó að fleiri séu fletirnir á auðugri skáld- gáfu hans, og önnur ljóð hans, svo sem kímni- kvæði hans, eigi einnig sinn drjúga þátt í víðtæk- um vinsældum hans. í þessari stuttu greinargerð verður þó aðeins svipast um af nokkrum kenni- leitum í siglinga- og sjómannaljóðum hans, enda a Það efni sérstaklega heima í málgagni íslenzkra sjómanna. Nánum tengslum sínum við hafið og djúpstæðri ást sinni á því lýsir Örn skáld fagurlega í eftirfar- andi ljóðlínum úr hinu snilldarlega kvæði hans, »Þá var ég ungur“. Ut við yztu sundin — ást til hafsins felldi — undi lengstum einn, leik og leiðslu bundinn. Og hann slær oft á sömu strengina annarsstaðar 1 Ijóðum sínum. Glöggum myndum er t. d. brugðið UPP í þessum hringhendum, er jafnframt bera órækan vott fágætri rímleikni hans: Liggur blár í logni sær, lítill gári steina þvær, úfin bára byrðing slær, boðinn hár til skýja nær. Syngur klóin, kveður röng, kyngisjóar heyja þing, klingir glóhærð kólguþröng kringum mjóan súðbyrðing. Hressilega túlkar skáldið hreystihug allra sannra sjómanna í eftirfarandi ferskeytlu, og þá um leið heilbrigt horf við lífinu, þegar á móti blæs og öldur andstreymis rísa, enda mun þar speglast karlmannleg lífsskoðun sjálfs hans: Þó að Ægir ýfi brá, auki blæinn kalda, ei skal vægja undan slá eða lægja falda. Hvergi hefir Örn þó náð betur í strengi sína seiðmagni hafsins yfir hugum manna heldur en í hinni léttstígu og yndislegu vísu sinni „Sigling“, þar sem eldar útþrár og ævintýraþrár loga undir: Hafið, bláa hafið hugann dregur. Hvað er bak við yztu sjónarrönd? Þangað liggur beinn og breiður vegur. Bíða mín þar æskudrauma lönd. Beggja skauta byr bauðst mér ekki fyrr. Bruna þú nú, bátur minn. Svífðu seglum þöndum, svífðu burt frá ströndum. Fyrir stafni haf og himininn. Og hafið hafði eigi aðeins seitt Örn til sín þegar á æskuárum og gert hann elskhuga sinn til dag- SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.