Sjómannadagsblaðið - 03.06.1951, Blaðsíða 27
Sigurjón Á. Ólafsson, fyrrv.
alþingismaður, hinn ötuli forvígis-
maður sjómannastéttarinnar, hefur nú
látið af stjórn Sjómannafélags
Reykjavíkur eftir 31 árs formanns-
störf. Öll þessi ár hefur Sigurjón
staðið í fylkingarbrjósti sjómanna-
samtakanna, og honum ber að þakka,
öðrum fremur, þær umbætur
er áunnist hafa fyrir sjómannastéttina
á þessu tímabili. Hann er hinn
eini fulltrúi, sem sjómenn hafa átt á
Alþingi, og síðan hann lét af
þingstörfum á sjómannastéttin þar
engan sérstakan fulltrúa. Hvað
sjómenn una því lengi, að vera þannig
hornrekur í þjóðfélaginu, er ekki
gott að vita, en ennþá virðast þeir
ekki hafa fundið þann, sem hefur
rumskað jafnvel við þeim og
Sigurjón Á. Ólafsson. Sigurjón á
sæti í stjórn Fulltrúðaráðs Sjó-
mannadagsins um allt er varðar
Dvalarheimili aldraðra sjómanna
jafnhliða Birni Ólafss, sem er
gjaldkeri byggingarsjóðsins.
ingu. Hugmyndateikning sú, sem bezt þótti og
hugsuð var á spítalalóðinni í Laugarnesi kostaði
þá 10—12 milljónir slík bygging. En myndi kosta
nú allt að 18 milljónir. Það er því augljóst, að
herða þarf róðurinn mjög um fjársöfnun jafnvel
þótt smærra verði byrjað en í upphafi var ráð-
gert. Það á að vera sjómannastéttinni metnaðar-
mál, að styðja þetta mál með framlögum. Annara
stétta mönnum er það vottur þakklætis til sjó-
mannastéttarinnar fyrir hið mikla starf sem á
herðum hennar hvílir um öflun verðmæta úr
djúpi Ægis og flutning á framleiðslu þjóðarinnar
til markaðslandanna og aðfluttum nauðsynjum
hennar. Dvalarheimilið á að verða sá friðsæli
hvíldarstaður fyrir þá, sem hafa slitið kröftum
sínum á hafinu og ýmsra hluta vegna kjósa hann
umfram aðra. Þegar búið er að binda fastmælum
um stað Dvalarheimilisins er miklum áfanga náð
og frekari framkvæmdir standa fyrir dyrum.
Störfum öll karlar og konur vel og trúlega að
þessu máli.
sjomannadagSblaðið 7