Sjómannadagsblaðið - 03.06.1951, Blaðsíða 67
Skipshafnarskrá í
Hér um skal hafa nokkur orð
og tel ég þá skipshöfn alla,
sem í ferðinni hér um borð
vil nú með nafni upp kalla.
Skal hér þá fyrstan telja þann
hraustan og dugandi mætamann,
sem öll við á treystum, í trú og von
skipstjórann Harald Ólafsson.
Næstan honum sem vera ber
sem markskálkur yfir htlum her,
ofandekks öllu meðfylgist hann
Kristján Aðalsteins, stýrimann.
Ari Kristjánsson hár og stór
stýrimann annar í ferðina fór,
hann, áður en skipið var laust við land
sér smellti í hið heilaga hjónaband.
Sem þriðja oss vantaði stýrimann
og illa það gekk, að ná í hann,
en meðan er líf, þá líka er von
um borð kom svo, Helgi vor Pétursson.
Vélstjóraliðinu, þannig er skipt
að telja við verðum Björn Jónsson þar fyrst.
Athugull, árvakur, og eitt er það víst
hann á sér það finnur, ef vélin ei snýst.
Annar í röðinni, einn íslands bur
á ektakvinnu frá Færeyjur.
I hitanum svitnar hann, lon og don,
Óskar hann heitir Friðbergsson.
Þá er að nefna þann þriðja í vél
Asbjörn sá heitir, er Bergsteinsson,
með þernunni tendraði hann ástaryl
að sundur var svift sumra annara von.
Arnason, Helgi, ungur er sveinn
fjórða sem vélstjóra, teljum hann einn
Stilltur og prúður, í allri háttvísi,
astfanginn varð hann þó fljótt í Hjördísi.
Einn svo höfum Einar þar
sa hlustar, sendir og vélritar.
Ljósmorsar, miðar og skiptir á tal
Bjarnason, er hann og heima, HringsdaL
Fyrstan má telja þar bátsmanninn
þá komið er framm í Lúkarinn.
Gefið hann hefir nú upp alla von,
kempan, hann Björn okkar Ásmundsson.
Trésmíðameistarinn Þorlákur
Þórarins bur, með mikinn skrokk,
með hamar og exi allferlegur
Naglbít, Sög, Hefil og Tommustokk
Emhverjir verða svo næstir tveir
°g fyrir valinu verða þeir
Arngrímur og Pétur í þungavikt
þar næst, Jón Sig. og Benedikt.
Grikklandsfcrð
Eftir á þá að bætast við
Leifur Grímsson, sem vara smið,
af hásetum höfum við enn þá einn
Sæmund, en faðir hans heitir Sveinn.
Einn má og nefna, sem yfirmann,
þótt Lúkarnum, frammí þar búi hann
hjá vennen, oft heyrist, fuss og svei
vor vara vélstjóri Kristinn O. K.
Af kyndurum höfum svo aðra tvo
í vélarúmi báðir oft skrubba og þvo
í nær hálfa öld, hafa stundað þeir sjó
Sigurður Sigurðs og Andres Jóh.
Ennþá má telja tvo kyndaramenn
og bezt því að taka, þá báða í senn
hann Guðjón er áður fyrr stundaði dorg
og Halldór, sem fyrrum var þjónn á Borg.
Loks er þá bezt að bæta við,
svo allt megi verða fullkomið,
sem áhöfnum flestum er illa við,
en það er hið blessaða Brytans lið.
Brytinn er lítill af gömlum merg
og í skírninni hlaut nafnið Elísberg
hann svalar og mettir allt skipsins þý
á góðmat, Bjór, Rommi og Scots Whisky.
í eldhúsi annast um matinn tveir
Guðjón og Ásgeir það heita þeir
að mótttaka skammir og forðast öll vein
það skiptist á fyrsta og annan matsvein.
Við höfum í búrinu friðsaman mann
en forðast skal helzt, að styggjast við hann.
Þótt danskur í lund, er hann samt niðji Fróns
er allvíða þekktur, hann Arnar Jóns.
Að annast um farþega, við einn höfum þjón,
sem Sigurður heitir, en faðir hans Jón,
sem hálf kandidat lir skóla Ingimars
hann stakk sér til sjós, og sigldi til hafs.
Enn er einn þjónn, það er Eyjólfs bur
einnig hann heitir Sigurður.
Ei hálærður er hann, en góð er það sönnun
að hann gengur um beina hjá skipsyfirmönnum.
Þernunni að gleyma, það öðru er nær,
af okkur flestum, hún pressar og þvær.
Dagbækur skrifar og sjálfa sig kýs,
skrifar sig Sævar og heitir Hjördís.
Skráningu þessari er nú loks hætt
og geta nú aðrir betur um bætt.
Á hendur Grikkjum við felum nú oss
ofanskráð áhöfn á Brúarfoss.
Kokkhúslykill Eldhúslaus.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 47