Sjómannadagsblaðið - 03.06.1951, Blaðsíða 56
Minnismerki sjómanna
í Vestmannaeyjum
Á þjóðhátíð Vestmannaeyja 1935, vakti Páll Odd-
geirsson útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, máls
á því, að reisa ætti drukknuðum sjómönnum við
Vestmannaeyjar og hrapaðra í björgum, veglegan
minnisvarða. Mun þessi hugmynd hans hafa mætt
fyrst í stað misjöfnum skilningi meðal almenn-
ings, en Páll lét ekki standa við orðin ein, heldur
stofnaði hann sjóð, sem síðan hefur starfað og
vaxið og nefnist „Minningarsjóður drukknaðra
sjómanna við Vestmannaeyja og hrapaðra í björg-
um“.
í örstuttu viðtali, er ég átti við Pál Oddgeirsson
um þetta áhugamál hans, sagði hann, að eftir að
fjárhagsleg geta virtist vera fyrir hendi, til að
reisa minnivsarðann, hafa margar tilraunir verið
gerðar til að fá íslenzka listamenn til að spreyta
sig á viðfangsefninu. Sjóðsstjórnin gat ekki fellt
við neina þeirra úrlausna er bárust, að einni
undanskildri, sem líkaði mjög vel, en fé skorti til
að reisa það fagra minnismerki. Það var frá
Herði Bjarnasyni.
Guðmundur Einarsson, frá Miðdal, gerði s.l.,
haust líkan að minnismerki, sem fékk einróma
lof sjóðsstjórnar, og viðurkenningu þeirra er hlut
áttu að máli.
Minnismerkið er af sjómanni í stakk, og er
hann 2,55 metrar á hæð, en með fótstalli verður
hæð þess 4,65 metrar, styttan verður steypt í
kopar, ennfremur skreyting á stalli, en annars
verður stallurinn sjálfur gerður úr blágrýti úr
fjöllum eyja.
Styttunni hefur verið valinn staður á nokk-
urri upphækkun beint framan við Landakirkju
í Vestmannaeyjum. Þaðan er víðsýni mikið og
fagurt, og horfir sjómaðurinn til hafs.
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur gefið lof-
orð fyrir fjárhagslegu liðsinni ef á þarf að
halda, einnig hafa samtök sjómanna í Eyjum mik-
inn áhuga á að hrinda þessu máli í framkvæmd.
Kvennfélag Landakirkju í Vestmannaeyjum hef-
ur lokið við að girða kirkjulóðina, og er hún nú
algróin grund, sama félag hefur ákveðið, að gera
þetta að trjá- og skrúðgarði. Garðurinn umhverfis
Landakirkju, sem er mjög fagurlega gerður er
teiknaður af bæjarstjóra Vestmananeyja, Ólafi
Kristjánssyni, sem stutt hefur þetta mál á ýmsan
hátt.
Aðalörðugleikar á vegi þessa máls, hefur verið
við öflun fjár, svo og gjaldeyrisvandræði. Þar
sem ekki er enn svo langt komið, hér á landi
Páll
Oddgeirsson.
36 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ