Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1951, Síða 37

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1951, Síða 37
vegin yfir sundið. Kolniðamyrkur var, svo ekki sá handa skil nema þegar lýsti af eldingu. Sýnir þetta bezt hvaða ofurkapp var í liðinu. Tóku þeir hús a Spánverjunum, þar sem þeir sátu og ornuðu sér við eld, og hófst þar æðisgenginn bardagi er stóð þar til dagur rann. Gekk illa að vinna Spánverjana inn í bæn- um því þeir vörðust bæði af harðfengi og list og varð að rjúfa allann bæinn yfir þeim til að vinna þá. Þegar bjart var orðið og þó margir ófallnir, var Magnús sonur sýslumannsins feng- inn til að vinna á þeim með byssu, og virðist sem Islendingum hafi ekki verið tamt, að nota það vopn. Vörn Spánverjanna var viðbrugðið, en eng- m miskunn var sýnd, og þeim ekki heldur sem Ari vildi grið veita, eins og Marteini skipstjóra, er unn- m var á sundi og Marteini meinlausa er skriðið hafði undir kú um nóttina og ekki bar hönd fyrir höfuð sér, var hann síðastur drepinn hinna spönsku manna. Spánverjar þeir sem hér um ræðir voru ekki neinir bjargarlausir skipbrotsmenn er flýðu á náðir landsmanna, heldur velvopnaðir yfirgangs- menn er töldu sér alla vegi færa og sezt höfðu að a beztu bæjum og lífsbjörgum landsmanna sjálfra. Þegar Vestfirðingar réðust til atfarar við þá voru þeir ekki að ráðast á garðinn þar sem hann var lægstur. Spánn var er þetta skeði, mesta stórveldi heimsins, er skaut öðrum þjóðum skelk í bringu. Það var ekki langt síðan að hinn „ósigr- andi“ floti þeirra ætlaði að sigra England, og um þetta leiti höfðu þeir sett her á land í írlandi. „Flavit Deus, et, dissipati sunt“ — „Guð sendi storminn og sundraði þeim“. Er grafið á sigur- merki Englendinga frá þessum tíma. Það er ekki ósennilegt, að eitthvað svipað hafi forfeður okkar við Djúpið hugsað. En eitt er víst, ag það er margt sem bendir til þess, að Spánverjarnir hefðu notið hér fullra griða ef þeir strax hefðu gengið lands- mönnum á hönd og engan óskunda gert. En eins °g málum var komið var ekki um neina völ nema aö þola hverskonar svívirðingar möglunarlaust eða draga sverðið og láta gilda lands lög og rétt. En þegar á annað borð er farið að beita vopnum bíður einn ósóminn öðrum heim, og hinir miskunn- arlausu aðfarir ísfirðinganna við Spánverjana, líka bá, sem gáfust upp, sýnir bezt hvað grimmdin getur verið mikil, líka hjá hversdagslega gæfum mönn- um, ef hefndaþorsti þeirra er vakinn. Sigling Við ýtum frá landi á örlitlu fleyi örugg, því byrinn er leiþandi’ um ver. Hve indcelt að berast um öldunnar vegi, í algleymi fagnaðar hugurinn er. sviflétt á bárum um sólfagran geim. Um silfurbjart hafið, á seglunum þöndum, Svellur á þeipum, og brestur í böndum er berumst sem fuglinn á vœngjanna sveim. 0, fjöllyndi scer, þú sem huga minn hrifur heillandi breytileg öll er þín mynd. Er bárurnar örlítil bátþcena þlýfur og bregður á leiþ eins ag fagursköpt hind. Er brunar mitt fley yfir báruna þalda byrinn er Ijúfur og seglin við hún, svtfandi stefni á sjóndeildar brún. þá svellur mitt blóð eins og sjávarinsalda Ég sé upp til landsins, það sveipast 't móðu svipmiþið fagurt, og hrífandi bjart. Tindarnir snceþöþþtu glitrandi glóðu glampandi sólin þá þlceðir í sþart. / / Olaf'ta Arnadóttir. Þeir sem þarna áttust við, hinir spönsku hval- veiðimenn annarsvegar og útvegsbændur og sjó- menn á Vestfjörðum hinsvegar, hafa að öllum lýk- indum, verið með fremri athafna og mannskaps- mönnum á þessum viðsjáverðu tímum, hvorum- tveggja aldir upp við harðneskju og erfiða aðstöðu og báðir fullir þjóðarmetnaðar. Þessir aðiljar báðir, hefðu getað orðið hver öðrum að miklu liði eins og á stóð, báðum aðiljum til gagns og blessunar, en úlfuð og tortryggni eyði- lagði alla möguleika fyrir friðsamlegu samkomu- lagi. Það er gamla sagan, sem alltaf endurtekur sig í samskiftum manna og þjóða, þar sem engir eru til að bera klæði á vopnin. H. H. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 17
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.