Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Qupperneq 15

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Qupperneq 15
Útgefandi: SJÓMANNADAGSRÁÐ Ritstj. og ábyrgðarm.: Halldór Jónsson. Guðm. H. Oddsson. ÚTGEFANDI: SJÓMANNADAGSRÁÐIÐ Sjómannadagsblaðið 7. júní 1964 — 27. árgangur Pétur Sigurðsson, form. Sjómannadagsróðs: Ritnefnd: Garðar Jónsson. Jónas Guðmundsson. Júlíus Kr. Ólafsson. Horft um öxl og fram á við ALÞVÐUPRENTSMIÐJAN H-F EFNISYFIRLIT Horft um öxl og fram á við . . 1 Máfurinn hvíti ................. 3 Skipastóll íslendinga árið 1963 4 Sjómannadagurinn í Reykjavík 1963 5 Minnisvarði sjómanna reistur á Kirkjusandi .................. 8 Fimmtán ára nemendur Stýri- mannaskólans.................. 9 Oldubikarinn ................... 9 Sjóslys og drukknanir........... 10 Víða liggja vegamót ............ 11 Fiskirannsóknarskip ............ 12 Hafnarborgir ................... 13 Orustan um Sevastopol......... 14 Beinhákarlinn, saga ............ 16 Hljóðmerkja- og talmagnari ... 17 Neyðarmerkjaraketta ............ 17 Sjómannaskólinn í Reykjavík . 18 Skipafréttir................... 20 Minningar og kveðjur .......... 22 Fastheldni — Reglusemi .... 23 Bergtröllið á Skagafirði...... 24 Hóf síldveiðiskipstjóra 1963 . . 28 Dvölin var köld og þungleg þar 30 í hákarlalegu ................. 30 Lítil ferðasaga ............... 34 Fiskveiðar Faereyinga ......... 36 Heiti skipafélaga .............. 37 Samvinna er „allt sem þarf“ . . 38 Elzta siglingasaga veraldar ... 39 A veiðum í Lusitaniu........... 40 Nýjungar í veiði og veiðarfæra- tækni ....................... 41 Skipalest PQ 17 sökkt .......... 45 Þegar við hættum herskipasmíð- inni ........................ 48 Síldarleit úr kafbát............ 50 Kveðjur til sjómanna o. fl. Þegar horft er um öxl, til síðasta Sjómannadags, er ærin ástæða til að fagna margs, sem skeð hefur á þessu tímabili. Gott veðurfar samfara góðum aflabrögðum, sem enn hafa aukizt, vegna hinnar nýju veiðitækni, stærri og fullkomnari skipa, auk stórbættrar aðstöðu í landi til að nýta þann afla, sem að landi berst, þótt enn vanti þar mikið á, svo vel sé. Ekki er síður ástæða til að fagna fækkandi mannsköðum á sjó, og vegur þar tvímælalaust þyngst hin frábæru björgunartæld — gúmmíbátarnir. Ef þeir hefðu ekki verið fyrir hendi hin síðustu ár, er hætt við, að ver hefði oft og tíðum farið, en raun ber vitni um, sérstaklega við hina óhugnanlegit tíðu skips- tapa síldveiðiskipa, eftir að hin nýja veiðitækni og breytti veiðiíitbiínaður kom til sögunnar. Sjóslysanefnd hefur nú verið að störfum í tæpt ár. Verkefni það, sem henni var falið er bæði viðamikið og seinunnið, en vonandi tekst nefnd þessari að finna or- sakir þessara tíðu sjóslysa og gera þær tillögur til úrbóta, sem að gagni koma. Um leið verður að krefjast þess að reglur, sem settar hafa verið og kunna að verða settar, um öryggi á sjó, séu haldnar og þyngstu viðurlögum beitt fyrir brot á þeim. í fróðlegri grein, sem nýlega birtist eftir Bjarna Braga Jónsson hagfræðing, um atvinnuiékjur alþýðustétta, kemst hann að þeirri niðurstöðu, að tekjuskiptingin mæld eftir afstöðu atvinnutekna verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna til þjóðartelma á mann á föstu verðlagi, var árin 1959 til 1962 mjög lítið breytt frá árinu 1948. Gildir það jafnt, hvort sem litið er til atvinnutekna fyrir skattlagningu, eða til ráðstöfunar- tekna að frádregnum beinum sköttum og að viðbættum fjölskyldubótum. Þessar af- stöður voru launþegum óhagstæðari árin 1950 til 1960, en í upphafi og við lok tíma- bilsins (1948 til 1962). í höfuðdráttum hefur hlutskipti launþega fylgt þróun þjóðartekna, en sérstak- lega hagstæð afstaða tekna þeirra við upphaf og lok tímabilsins stendur m. a. í sam- bandi við háar niðurgreiðslur og fjölskyldubætur. Þýðingarmiklar breytingar hafa orðið á innbyrðis afstöðu atvinnuteknanna. Við upphaf tímabilsins voru tekjurnar mjög ójafnar eftir landshlutum, nærri 30% lægri í kauptúnum en í Reykjavík og um 15% lægri í kaupstöðum. Atvinnutékjur þessara staða þróuðust síðan jafnt og þétt til jafnaðar við atvinnutékjur í Reykjavík. Fullum jöfnuði var náð árið 1957 og hafa meðalatvinnutekjur í kaupstöðum og kauptúnum síðan verið hærri en í Reykjavík. Hlutföll atvinnutéknanna milli starfsstéttanna, verkamanna, sjómanna og iðn- aðarmanna, breyttust lítið fram til 1958. Tekjur sjómanna voru oftast um 12 til 15% hærri og tekjur iðnaðarmanna oftast um 10 til 16% hærri en tekjur verkamanna. Þó fór munurinn fremur minnkandi með árunum. Frá árunum 1958 til 1959 hafa bilin aftur á móti aukizt vendega. Tekjur iðnaðarmanna hafa að vísu aðeins náð því hlut• falli við tekjur verkamanna er þær höfðu áður. En tekjur sjómanna hækkuðu mjög SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.