Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Síða 17

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Síða 17
Dr. RICHARD BECH: MÁFURINN HVÍTI Máfurinn hvíti, hvaðan bar þig að strönd himinsins bláa vegu fjarst yfir sœ? Leiztu þér brosa suðurs sólfögur lönd? Sástu þér Ijóma tinda glitrandi snœ? Máfurinn hvíti, hvert flýtir þú héðan ferð flugléttum vœngjum ómœlis háan geim? Vekur ei hug þínum ótta, sem ógni sverð, úthafið mikla, þá klýfurðu skýjaheim? Máfurinn hvíti, liggi til norðurs þín leið, landinu mínu fagra við sœdjúpin blá, ástþrungna kveðju berðu um háloftin heið, heilsaðu fjöllum með kvöldroða gullið um brá. (Ort vestur á Vancouvereyju síðastl. sumar). v_________________________________________________________________________y verðbólguthnum, án þess að grípa til áðurgreindra aðgerða? Þar gæti vissulega ýmislegt komið til greina. Kröfugerðir byggðar á saman- burði við fiskimenn verður þó erfitt að útiloka, nema skilningur og viðurkenn- ing annarra launþegahópa fáist á því, að það sé ekki stður hagkvæmt fyrir þá en þjóðfélag okkar í heild, að afburða- menn á sviði aflamennsku og afkasta njóti verðugrar umbunar fyrir störf sín. Hinu vandamcílinu, að nýjar og áður óþekktar tekjuupphæðir séu notaðar sem eyðslufé, sem eykur á þenslu efnahags- kerfisins, mætti t. d. mæta með vísitölu- tryggingu lífeyrissjóða og sparifjár. Of langt mál er að rekja hugsanlegar leiðir til þess, hvort, eins og stundum hefur verið fleygt fram, um skylduspari- fjársöfnun væri að ræða, eftir að vissu tekjuhámarki væri náð, til hvers ætti að nota slíkt sparifé, og undir hvaða kringumstæðum eigendur þess gætu nýtt það t eigin þágu o. s. frv. Eins og að framan getur, má segja að verðbólgan hafi ékki veruleg áhrif á tékjuskiptinguna í þjóðfélaginu, ef yfir skemmri tíma er litið. Annað verður uppi á teningnum, ef horft er yfir lengra tímabil. Þá koma inn á myndina þeir er lifa á eftirlaunum og tryggingarfé ýmis konar. Verðbólgan leiðir til þess, að hlut- ur þessa fólks í þjóðartekjunum fer rýrn- andi, þegar til lengdar lætur. Er þetta alvarlegt ihugunarefni fyrir þau fjöl- mörgu stéttarfélög sjómanna, sem komið hafa sér upp ýmis konar styrktar- og lífeyrissjóðum. En verðbólgan hefur fleiri og alvarlegri hliðar. Þannig hefur hún veruleg áhrif á eignaskiptinguna í þjóðfélaginu. Spari- fjáreigendur tapa, en skúldarar græða. Þótt mörg dæmi séu um það, að efna- litlir einstaklingar hafi hagnazt á verð- bólgunni vegna íbúðarhúsabygginga fyr- ir sig, þá hljóta menn að viðurkenna, að stærstu áhrifin verða í þá átt, að eignar- réttur þeirra verðmæta, sem er í hönd- um margra en smárra sparifjáreigenda, flyzt í hendur fárra en stórra atvinnu- fyrirtækja. Þetta er þróun, sem fáir laun- þegar munu telja æskilega, hvort sem þeir starfa til sjós eða lands. Þann 11. apríl 1962 var svohljóðandi tillaga samþykkt á Alþingi: „Alþingi ályktar að skora á ríkis- stjórnina að láta fara fram athugun á því, hvernig framkvæma megi verðtrygg- ingu frjálsra lífeyristrygginga, bæði líf- eyrissjóða verkalýðsfélaga og annarra launþegasamtaka og lífeyristrygginga á vegum einstaklinga. Verði niðurstöður þeirrar athugunar lagðar fyrir Alþingi." í merkilegri ritgerð, sem flutnings- maður þessarar þingsályktunartillögu, Ólafur Björnsson prófessor, hefur samið um mál þetta, kemst hann að þeirri nið- urstöðu, „að Seðlabankanum, Trygging- arstofnuninni eða stjálfstæðri stofnun verði falin eftirfarandi starfsemi: 1. Ávöxtun lífeyrissjóða launþega, er stofnaðir hafa verið með samning- um við atvinnurékendur, svo fremi samtök þau, er hlut eiga að máli óski eftir því. 2. Taki að sér lífeyris- og líftrygging- ar fyrir einstaklinga. 3. Taki á móti sparifé með vísitölu- kjörum, enda sé féð bundið til a. m. k. 3 til 5 ára. Allt það fé, er stofnun á, ávaxtist með vísitölukjörum og er þar miðað við A og B liði núverandi visitölu framfærslu- kostnaðar. Rtkið ábyrgist allar skuld- bindingar stofnunarinnar og lántakend- ur sktddbindi sig til þess að endurgreiða fé það, er þeir fá að láni hjá stofnuninni með vísitöluálagi." Þetta er það helzta úr niðurstöðum próf. Ólafs Björnssonar. Að sjálfsögðu er ég orðinn nokkuð langorðtir um þau þýðingarmiklu hags- munamál sjómanna, sem hér hefur ver- ið drepið lauslega á, en máske vekja þau sjómenn til umhugsunar um þessi mál af víðari sjónarhól en nú virðist í tízku meðal starfshópa. Sjómenn, a. m. k. á sðuvesturlandi eiga myndarleg sjálfstæð tímarit, sevt kovta reglúlega út, „Víkingurinn" hjá Farmanna- og fiskimannasambandi ís- lands og „Sjómaðurinn", útgefinn af Sjómannafélagi Reykjavíkur. Þessi rit eru opin þeim sjómönnum, sem eitthvað vilja leggja til í umræðum um þessi og önnur þýðingarmikil mál. Pétur Sigurðsson. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.