Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Qupperneq 19
Sjómannadagurinn í Reykjavík 1963
í reglugerð Sjómannadagsins seg-
ir, að Sjómannadagurinn skuli hald-
inn fyrsta sunnudag í júní, beri hann
upp á hvítasunnudag, skal Sjó-
mannadagur haldinn næsta sunnu-
dag á eftir. Að þessu sinni varð að
víkja frá þessari reglu, því að auk
þess sem hvítasunna bar upp á
sunnudaginn 2. júní voru almennar
kosningar til Alþingis ákveðnar
sunnudaginn 9. júní. Það þótti of
snemmt vegna vorvertíðarinnar að
halda daginn sunnudaginn 26. maí,
en hinsvegar of seint vegna síldar-
vertíðar að fresta honum til sunnu-
dagsins 16. júní. Var því ákveðið að
halda Sjómannadaginn 3. júní,
mánudaginn annan í hvítasunnu,
þótt sá dagur væri miður æskilegur
margra hluta vegna, sérstaklega
fyrir Reykvíkinga, en í önnur hús
var ekki að venda.
Þetta var 26. Sjómannadagurinn
og fór fram í Reykjavík með svip-
uðum hætti og undanfarin ár. Veð-
ur var kyrrt og gott. Strax um morg-
uninn voru öll skip í höfninni fán-
um skreytt og fánar blöktu við hún
víðsvegar um borgina. Kl. 9.30 um
morguninn var að ósk Tryggva
Ófeigssonar útgerðarmanns afhjúp-
að á vegum Sjómannadagsins,
minnismerki af sjómanni, sem
Tryggvi hafði látið koma fyrir á lóð
H.f. Júpiters og H.f. Marz á Kirkju-
sandi. Minnismerkið sem er mjög
vel gert og táknrænt er gert af Jónasi
Jakobssyni myndhöggvara. Halldór
JóiiSoO.n loítskeytamaður flutti stutt
ávarp. Frú Herdís Ásgeirsdóttir
kona Tryggva afhjúpaði minnis-
merkið. en Lúðrasveit Reykjavíkur
lék á undan og eftir þessum atriðum.
Fánaborg Sjómannadagsins á Austurvelli.
Eiríkur Kristófersson, fyrrv. skipherra, ásamt eiginkonum þeirra Jóns Ólafssonar og Sigurðar
Benediktssonar, sem ásamt Eiríki hlutu heiðursmerki Sjómannadagsins.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 5