Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Page 22
Minnisvarði sjómanna
reistur á Kirkjusandi
Síðasta Sjómannadag var afhjúpuð
myndastytta á vinnuplássi júpiters og
Marz h.f. að Kirkjusandi. Eigendur
óskuðu að athöfn þessi færi fram á
Sjómannadaginn, jpar sem styttan, j>ó
hún sé í einkaeign, er reist sem virð-
ingarmerki við íslenzka sjómannastétt
í heild fyrr og síðar fyrir hin }>jóð-
nýtu störf hennar í þágu lands og lýðs.
Vegna takmarkaðs fyrirvara varð at-
höfn þessari ekki komið fyrir innan
hinnar almennu dagskrár Sjómanna-
dagsins, en hófst að morgni kl. 9 að
viðstöddum miklum mannfjölda. Hall-
dór Jónsson ritstjóri Sjómannadags-
blaðsins flutti ávarpsorð þait er hér
fara á eftir, en Lúðrasveit Reykjavíkur
lék sjómannalög á undan og eftir.
Heiðruðu áheyrendur!
Eg leyfi mér fyrir hönd Sjómanna-
dagsráðs að bjóða ykkur velkomin
til þátttöku þeirrar hátíðarstundar,
sem hér er stofnað til, með afhjúpun
minnisvarða, sem tileinkaður hefir
verið íslenzkri sjómannastétt.
Togaraútgerðarfélögin Júpiter h.f.,
sem starfað hefir í 34 ár og Marz
h.f., sem starfað hefir í 24 ár, eru
bæði stofnuð af mönnum, sem höfðu
gert sjómennskuna að lífsstarfi sínu.
Þau hafa eignast og starfrækt glæsi-
leg fiskiskip, sem hafa flutt að landi
mikinn afla úr djúpum hafsins á
þessum áratugum, landi og þjóð til
margvíslegrar hagsældar.
A þessu tímabili hafa óteljandi
margir dugmiklir sjómenn starfað á
togurum félaganna, og allmargir hér
nú á meðal okkar, sem starfað hafa
hjá þeim allt frá fyrstu tíð og starfa
enn þá, en aðrir um áratugi.
Togaraútgerð landsmanna hefir
ætíð verið einn burðarmesti ásinn að
framförum á Islandi. Þar hafa marg-
ir lagt hönd á plóginn til starfa, sem
krafist hafa karlmennsku, dugnað-
ar og ósérhlífni.
Hugmyndin að því að reisa þenn-
an minnisvarða er frá stjórn fyrir-
tækjanna Júpiter og Marz h.f. og
fram komin sem virðingarvottur
fyrir hin þýðingarmiklu störf sjó-
mannastéttarinnar. Listamaðurinn
sem gert hefir myndastyttuna er
Frú Herdís Ásgeirsdóttir afhjúpar minnis-
varðann.
Jónas Jakobsson, einn af þeim nem-
endum Einars Jónssonar mynd-
höggvara, er hann taldi meðal sinna
fremstu. Jónas Jakobsson hefir unn-
ið að tugum listaverka fyrir skóla,
félög og einstaklinga á Akureyri, en
mun flestum kunnur fyrir mynda-
Stjórn Sjómannadagsráðs ásamt Tryggva Ófeigssyni og frú Herdísi.
Tryggvi og Herdís við minnisvarðann.
& SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ