Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Side 23

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Side 23
Fimmtíu ára nemendur Stýrimannaskólans Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan átti 70 ára afmæli 7. október síðastliðinn. Aldan er elzta starfandi stéttarfélag sjómanna hér á landi og hefur ávallt staðið framarlega í baráttu fyrir hagsmunamálum skipstjórnarmanna, sjávaríitvegs og sjómannastéttarinnar í heild. Stjórn félagsins minntist þessa merka afmælis á ýmsan hátt og hefur þess verið getið annars staðar. Sjómannadagsblaðið birtir í þessu sambandi mynd af 50 ára nemendum Stýrimannaskólans, sem allir voru landskunnir fyrir störf sín á sjónum og stóðu framarlega í hagsmunamálum stéttar sinnar á sjó og landi. styttuna „Landnemar“, er hann gerði fyrir Akureyrarkaupstað. Listamaðurinn hefir unnið að þessu verki um eins árs skeið. Af hálfu forráðamanna fyrirtækjanna var sett fram sú ósk, að fram kæmi í myndinni sjópoki og fiskkippa, sem tákn þess manns, sem fer á sjó til fanga og flytur fisk að landi. Að öðru leyti hefir listamaðurinn haft algjörlega frjálsar hendur um gerð myndarinnar. Upphaflega var hugsað, að láta myndina standa á bersvæði sjávar- megin fyrir utan fiskverkunarstöð- ina, en þar sem það er tiltölulega fá- farin leið af almenningi var frá því horfið og henni valinn staður hér inni á athafnasvæðinu. Hér nýtur hún sín einig vel, í þeirri fögru gróðurvin, sem hefir verið ræktuð til aðhlynningar og augnayndis fyrir þau hundruð karla, kvenna og ung- linga sem á ýmsum tímum starfa hér að mikilvægum framleiðslustörf- um. Minnisvarði þessi er reistur með hlýjum vinarhug — og til virðingar tileinkaður sjómannastétt landsins. Sjómannadagsráð þakkar fyrir hönd sjómannastéttarinnar í heild þetta myndarlega framtak henni til heið- urs og viðurkenningar. Samkvæmt eindregnum tilmælum stjórnar Sjó- mannadagsráðs vil ég biðja frú Her- dísi, eiginkonu Tryggva Ófeigsson- ar skipstjóra að afhjúpa myndina, til þess verkefnis sem henni er ætl- að — að vera táknmynd starfs þeirra manna sem: „flytja þjóðinni auð sækja barninu brauð, færa björgin í grunn undir framtíðarhöll.“ Öldubikarinn er gefinn af Fulltrúaráði Sjómanna- dagsins í tilefni af 70 ára afmæli Skip- stjóra og stýrimannafélagsins Óldunn- ar 7. október 1963. Bikarinn er farandbikar og veittur þeim nemanda Stýrimannaskólans í Reykjavík, er fær hæstu einkunn við burtfararpróf. Jafnframt fær hann til eignar heiðurspening úr silfri, en á hann verður ritað öðru megin Hand- liafi Öldubikarsins og ártálið er hann er afhentur, hinumegin verður svo þrykkt merlú Sjómannadagsins. ---------------------------------------- SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 9

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.