Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Side 33

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Side 33
Haraldur Guðmundsson skipstjóri frá ísafirði andaðist í Reykjavík í aprílmánuði síðastliðnum. Hann hóf sjómennsku á unglingsárum og var farsæll skip- stjóri um áratugi. Haraldur var mjög félagslyndur maður. Hann var for- maður skipstjórafélagsins,, Bylgjan“ á ísafirði um mörg ár og fulltrúi fé- lagsins á þingum FFSÍ. Hann var fyrsti formaður sjómannadagsráðs á ísafirði. Haraldur sat í bæjarstjórn ísafjarðar um langt árabil og gegndi ýmsum öðrum trúnaðarstörfum þar sem hann hafði traust allra er til hans þekktu. — H. J. Svar menntamálaráðherra var á þessa leið: „Eg er fyrirspyrjanda alveg sam- mála um það, að það er ekki viðun- andi, að svo langur tími skuli hafa liðið, sem raun ber vitni, án þess að lóðamörk Sjómannaskólalóðar- innar hafi verið endanlega ákveðin. Og ég skal með ánægju lýsa því yfir, að ég mun beita mér fyrir því, að máli þessu verði komið endanlega í höfn, og síðan í samræmi við vilja húsbygginganefndarinnar, þegar lóðamörkin hafa verið ákveðin, að fé verði veitt til þess að ganga end- anlega frá skipulagi og skreytingu lóðarinnar.“ Sjómannaskólinn, norðurhlið. Sjómannaskólinn, norðausturhlið. því, að hrúgað verði á hæðina, þar sem hann stendur á, svo miklu af byggingum, að engin þeirra njóti sín, að þar gerist svipuð saga og á Skólavörðuholti, þar sem stórbygg- ingar hafa risið og eru að rísa að því er virðist skipulagslaust í ein- um þéttum hnapp og æpa svo að segja hver á aðra. I von um, að enn megi takast að forða Sjómannaskól- anum og hæðinni, sem hann stend- ur á, að verða skipulagsleysinu og stílleysinu að algerri bráð, er fsp. mín fram borin. Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráð- herra svaraði fyrirspurninni. I svari hans kom fram, að þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir af hálfu bygginga- nefndar skólans hefðu lóðamörk hans ekki fengizt ákveðin enn. Væri og ógerlegt að skipuleggja skólalóð- ina fyrr en endanlegur úrskurður væri fenginn um lóðamörkin. Að fengnum þessum upplýsingum tók Gils Guðmundsson aftur til máls og skoraði á menntamálaráðherra að beita sér fyrir skjótum umbót- um í þessu efni: Fá því til leiðar komið, að borgaryfirvöld stæðu við gamalt fyrirheit um afhendingu myndarlegrar skólalóðar, og afla fjárveitingar til að gera lóðina vel úr garði. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 19

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.