Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Síða 37

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Síða 37
Fastheldni R e g I u s e m i Það er föst regla að á hverjum fimnitudegi, á mínútunni kl. 4 e. h. leggur eitt af skipum Union Castle line af stað úr höfn frá Southamp- ton með farþega og póst áleiðis til Cape Town og austur Afríku hafna. Út af þessari reglu hefir verið brugðið aðeins þrisvar sinnum, en það var meðan Búastyrjöldin stóð yfir og fyrri og síðari heimsstyrjöld, að öðru leyti hefir þessari siðvenju verið fast fylgt í rúma öld. En auk þessara vikulegu ferða til Cape Town, heldur Union Castle skipafélagið uppi hálfsmánaðarlegum ferðum frá London suður um Afríku og upp með austurströndinni. Myndin er af Kenya Castle úti fyrir Cape Town á leið austur um Afríkti. vinda, og langt til landsins, langar mig komast þangað. Unn, þó að kyssa kunni, kaldrifjuð bréytist aldrei. Kvæði Einars Páls Jónssonar „Haf“ lýsir því fagurlega og eftir- minnilega, hve mikil ítök það á í huga hans, og dvaldi hann þó lang- vistum, eins og þeir skáldbræður hans Þorsteinn og Kristinn, í Winni- pegborg, inni í miðjum og víðfeðm- um sléttum Kanada. Þessi eru upp- hafserindi kvæðisins: Fagra bjarta, breiða haf, — brúað sólargeisla staf. Alla leið, sem augað sér, ertu líkt og slípað gler. I þér speglast heiðishátt himinhvolfið djúpt og blátt. Líkt og bæn frá barnsins sál birtast mér þín Huldumál. Snemma unglings andi minn yndis naut við barminn þinn. Með eldi fyllta farmannsþrá eg flúði þínar náðir á. í síðari erindum kvæðisins verður hafið skáldinu táknmynd lífsins, og er sú algenga samlíking þar færð í orðhagan og markvissan búning. Verða hér ekki að sinni tekin fleiri dæmi um sævarljóð eða sævar- lýsingar í kvæðum vestur-íslenzkra skálda, en slík ljóð eru hreint ekki ómerkur þáttur í skáldskap þeirra, og jafnframt glöggt vitni þess, hve fasttengd þau skáld eru íslenzku æskuumhverfi sínu, ættemi og erfð- um. Okkur heimaöldum Islendingum, sem ævidvöl eigum utan ættjarðar- stranda, verður eigi hugsað til hafs- ins, sem umlykur ættland vort og sett hefir sitt sterka svipmót á sál okkar og hugsun, að okkur verði eigi samtímis rík í huga minningin um íslenzka sjómenn, og tekur það ekki sízt til okkar. sem sóttum sjó- inn fyrir ströndum þess á yngri ár- um. Og þegar ég minnist mikilvægs hlutverks sjómannanna íslenzku í starfslífi þjóðarinnar, hljóma mér í eyrum eftirfarandi orð hins ágæta æskulýðsleiðtoga, séra Friðriks Frið- rikssonar, sem hann sagði einu sinni við okkur unga menn á fundi í KFUM í Reykjavík, en þau voru á þessa leið: „Munið það, hvert sem leið ykkar liggur, að þið eruð lif- andi fánar Islands.“ Þau orð hafa mér aldrei úr minni liðið. Islenzkir farmenn mega vel leggja sér þau orð á minni. Þau minna kröftuglega á ábyrgðina, sem fylgir því að vera Islendingur, og ekki sízt í útlönd- um, þangað sem leiðir íslenzkra sjó- manna liggja oftar og víðar en flestra annara landa þeirra. Vitanlega tekur þetta til allra ís- lendinga, sem leggja leið sína til ann- ara landa, og erlendis dvelja, og þá um annað fram til okkar Islendinga vestan hafs. Þetta skildi Stephan G. Stephansson manna bezt, og því segir hann í þróttmiklu hvatningar- kvæði sínu „Móðurmálið“: Og orð þín þarf hér eggjan-sterk, því oss er skipað mikið verk: Við fósturlandsins frægðarstarf, með föðurlandsins sæmd í arf, af höndum inna æviþraut, með alþjóð fyrir keppinaut. Þetta á einnig sérstaklega við um íslenzka sjómenn, því að hvort held- ur er við veiðar sínar á hafi úti eða í erlendum höfnum, þá starfa þeir eða eru, beint og óbeint, „með alþjóð fyrir keppinaut“, eins og skáldið orðar það frumlega og á eftirminni- legan hátt. Minnugir þeirrar ábyrgðar, sem á okkur hvílir sem Islendingar, hvar sem við erum í sveit settir, skulum við taka höndum saman yfir hafið og strengja þess heit, að halda sem hæst á loft og bera sem lengst fram til sigurs fána íslenzks manndóms og hins fegursta og göfugasta í hug- sjóna- og menningararfi vorum. I þeim anda sendi ég, sem gamall starfsbróðir, ykkur íslenzkum sjó- mönnum kærar kveðjur konu minn- ar og mínar. I júníbyrjun liggur leið okkar austur loftin blá á fornar slóðir, heim í hina „nóttlausu vor- aldar veröld, þar sem víðsýnið skín“. Hittumst þar heil á Sjómannadaginn 7. jum. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 23
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.