Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Side 39

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Side 39
Drangey er úr móbergi, þver- hnípt berg að heita má alls staðar og ekki fært upp á hana nema á ein- um stað. Þó er sú leið enganveginn auðveld nema færustu mönnum unz komið hafði verið þar fyrir keðju og stiga til að létta uppgönguna. Heitir þar Uppgönguvík sem ráðist er til uppgöngu á eyna. Varasam- asti staður á allri leiðinni er svo- kallað Gvendaraltari, en um það er eftirfarandi þjóðsaga: „Áður en Grettir kom í Drangey var hún almenningur, en eftir það hann var drepinn (1030 hér um bil), komst hún undir biskupsstólinn á Hólum í Hjaltadal, og höfðu því Hólabiskupar mest umráð yfir eynni og mestar nytjar af fugli og fiskafla. En ekki var fuglatekjan annmarka- laus í þá daga, því Drangey lítur út eins og sæbrattur klettur úr sjón- um á allar hliðar, hvar sem á er litið. Framan af, meðan hér á landi voru fullhugar og ötulir aflamenn, sigu þeir mjög í bergið og sáust lítt fyrir, enda var þá fuglatekjan ólíkt meiri en nú, og urðu tíðum að því ógurlegir mannskaðar og slys; fór- ust menn úr vöðum og sigum, sprungu á niðurfallinu, lentu á klett- um svo hvert bein mölbrotnaði. Þess þóttust menn og brátt vísir verða, að jafnt fórust þeir úr berg- inu, sem góðar festar höfðu, og hin- ir, sem lakari vaði höfðu, og þótti það ekki einleikið. Voru festar þeirra þverkubbaðar sundur, er upp voru dregnar, eins og þær væru annaðhvort höggnar sundur með exi, eða skornar með öðru eggjárni; og ekki var trútt um, að mönnum heyrðist högg í berginu, rétt áður en menn fórust úr festum, og í því festarnar fóru í sundur. Lagðist því það orð á, að þeir einir mundu í berginu búa, sem ekki vildu, að landsmenn drægju allan afla úr höndum þeim, og þóttust eiga eyjar- gagnið eins vel og aðskotadýrin. Við manntjóni þessu vannst enginn líkn langan tíma, og var svo komið, að menn voru heldur farnir að heykjast á, að fara eins almennt til eyjarinnar og fyrst hafði tíðkazt, sökum mannskaða þeirra er þar urðu. Leið svo þar til Guðmundur góði Arason varð biskup á Hólum. Guðmundur biskup var, sem kunn- Gvendaraltari. ugt er af sögu hans, nytsemdarmað- ur mikill, með yfirsöngvum og vígslum, og vann með því löndum sínum löngum líkn og bót margra meina, og réð af margar illar vættir. Guðmundur biskup var góður við snauða menn og tók hann þá æði marga heim á staðinn, þegar hann sat þar, og hafði jafnan margt af þeim heim með sér, er hann reið um land. Af þessu varð stundum vor- sníkja hjá honum á staðnum og þurfti föng til að fá, hver sem fást máttu. Hann lét menn sína sækja mjög til Drangeyjar á vorum, bæði til fiskifanga og fuglatekju, og fór brátt að bera á því, að vættir þær, er á eynni voru, gengu eins í ber- högg við biskupsmenn sem aðra, og urðu af því mannskaðar stórir. Biskupi er sagt til, hvern mannskaða hann liði við eyna, og ræður hann það þá af, að hann fer til eyjarinnar með klerkalýð sinn og vígt vatn. I kappgönguvík er Steinstalli nokkur, sem lítur svo út sem hlaðinn væri, og er hann kallaður Gvendar-altari. Þegar biskup steig af skipsfjöl, segja menn, að hann hafi sungið messu, og haft þennan stall fyrir altari, en aðrir segja, að hann hafi aðeins gert þar bæn sína. Þeim sið halda menn enn í dag, að enginn fer sá upp í Drangey, eða ofan af henni, að hann geri ekki bæn sína við stalla þenn- an. En að því búnu fór hann til og vígði eyna, og byrjaði nokkuð fyrir norðan Hæringshlaup, útsunnan- SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 25

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.