Sjómannadagsblaðið - 26.05.1968, Blaðsíða 44
Fulltrúar, stjórn og starfsfólk á 23. þingi F. F. S. f.
FFSÍ —
Þrjátíu ára gifturíkt starf
Á 23. þingi FFSl síðastliðið haust var
þess minnst, að þá voru liðin 30 ár frá
stofnun sambandsins. Rakti núverandi
forseti FFSÍ, Guðmundur Ff. Oddsson,
aðdragandann að stofnun sambandsins
og ýmis áhuga- og baráttumál þess á
þessu tímabili, er ýtarlega skýrt frá því
í Sjómannablaðinu Víking 1. tbl. þ. á.
Starfsemi sambandsins hefir farið
mjög vaxandi á undanförnum árum,
með auknum meðlimafjölda, en innan
þess eru nú öll skipstjóra- og stýrimanna-
•félög landsins, Vélstjórafélag Islands,
Mótorvélstjórafélag Islands, Félag bryta
og Félag íslenzkra loftskeytamanna.
Á öðru ári sambandsins hóf það út-
gáfu tímarits er hlaut nafnið Víkingur-
inn, síðan var brot þess stækkað og nafni
þess breytt í „Sjómannablaðið Víking-
ur“, og er það eina tímarit sjómanna-
stéttarinnar á breiðum grundvelli, sem
komið hefir út að staðaldri um áratugi.
Blaðið hefir á margan hátt verið lyfti-
stöng um málefni sjómanna og sam-
bandsins og því til sóma.
Fyrstu sambandsstjórn FFSÍ skipuðu:
Ásgeir Sigurðsson skipstjóri, forseti, Þor-
30 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
steinn Árnason vélstjóri, varaforseti,
Konráð Gíslason stýrimaður, ritari,
Magnús Guðbjartsson vélstjóri, ritari, og
meðstjórnendur Guðbjartur Ólafsson
hafnsögumaður, og Sigurjón Einarsson
skipstjóri.
Guðmundur Jensson lofskevtamður
hefir verið framkvæmdastjóri FFSÍ og
Ásgeir Sigurðssott.
meðritstjóri Sjómannablaðsins Víkings
um 22 ár. Forsetar FFSl frá upphafi til
þessa dags hafa verið:
Ásgeir Sigurðsson skipstjóri, forseti
frá 8. júní 1937 til dauðadags. — Hann
varð bráðkvaddur 22. september 1961,
þar sem hann var staddur á samkomu
Norsk-íslenzka félagsins í Stavanger, en
hann hafði skömmu áður verið kjörinn
heiðursfélagi þess, sem stofnandi þess 9
árum áður. Ásgeir hafði því verið for-
seti FFSÍ rúm 24 ár óslitið, og notið ein-
dæma verðugs trausts og vinsælda í þvi
vanda- og erilssama starfi, ólaunað að
öðru en virðingu allra er kynntust ósér-
hlífnu starfi hans í þágu sjómannastétt-
arinnar, hvar sem því varð við komið.
Egill Hjörvar vélstjóri, sem var vara-
forseti er Ásgeir féll frá, gegndi því fram
yfir 20. þing, 16. nóvember sama ár.
Kristján Aðalsteinsson skipstjóri for-
seti 1961—1963.
Örn Steinsson vélstjóri, forseti 1963
—1965.
Guðmundur H. Oddsson, forseti frá
1965.