Sjómannadagsblaðið - 26.05.1968, Blaðsíða 61
1967:
26/4
27/6
22/7
15/10
14/11
1968::
5/2
13/2
28/2
Sjóslys
og drukknanir
frá 26. apríl 1967 til
28. febrúar 1968.
Drukknaði Sigurður Emilsson, 48 ára, frá Hlíðarhúsi, Djúpavogi, er hann féll fyrir
fyrir borð af vb. Sunnutindi frá Djúpavogi.
Drukknaði Ævar Hólmgeirsson frá Flatey á Skjálfanda, er hann tók út af mb. Sigur-
borgu frá Siglufirði.
Drukknaði Halldór Jóhannsson, 66 ára, á mb. Haraldi Ólafssyni. Er talið að hann
hafi fallið á milli bryggju og skips.
Drukknaði Níels Axelsson, 20 ára, frá Kletti við Kleppsveg, háseti, á Seyðisfirði. —
Álitið er að hann hafi runnið fram af bryggjunni.
Drukknaði Rafn Sigurðsson, 30 ára, skipverji á vb. Björgvin frá Dalvík, er hann
féll í sjóinn á milli skips og bryggju.
Drukknuðu 6 menn er Heiðrún frá Bolungavík fórst:
Rögnvaldur Sigurjónsson, skipstjóri, 52 ára. Lætur eftir sig tvö börn.
Páll ísleifur Vilhjálmsson, vélstjóri, 31 árs. Kvæntur og átti eitt barn.
Kjartan Halldór Kjartansson, háseti, 23 ára. Kvæntur og átti tvö böm.
Ragnar Rögnvaldsson, háseti, 18 ára, sonur Rögnvaldar. Ókvæntur.
Sigurjón Rögnvaldsson, háseti, 17 ára, sonur Rögnvaldar. Ókvæntur.
Sigurður Sigurðsson, háseti, 17 ára. Ókvæntur.
Drukknuðu 4 menn er vb. Trausti frá Súðavík fórst:
Jón Magnússon, skipstjóri, frá ísafirði, 36 ára. Ókvæntur, en átti eitt bam.
Jón Ólafsson, stýrimaður, frá Garðsstöðum í Ögurhreppi, 33 ára. Ókvæntur.
Halldór Rúnar Júlíusson, vélstjóri, frá Súðavík, 30 ára. Kvæntur og átti sex böm.
Eðvarð Guðleifsson, matsveinn, frá Súðavík, 45 ára. Ókvæntur.
Drukknaði Bjarni Steingrímsson, Sogavegi 158, Reykjavík, er hann tók út af togar-
anum Karlsefni.
Dauðahafið
er ekki dautt
Við rannsóknir hefir komið í
Ijós, að einfasa sellur hafa fund-
ist í Dauðahafinu, sem eingöngu
geta lifað þar, en missa lífsþrótt-
inn ef þær eru settar í léttara vatn.
Fram að þessu hafa fundist um
30 tegundir af frumum og átta
tegundir af hakteríum í Dauða-
hafinu. Flver einasti cuhikmeter
af því er talinn innihalda um eina
milljón slíkra fruma. Og talið er
að þessar lífverur séu ástæðan fyr-
ir hinum rauða lit hafsins, sem
stundum hregður fyrir eins og
fláka á vatnsfletinum, og verður
eldrauður á köflum.
Dr. Ben Zion og kona hans dr.
Margaret í Hehreska háskólannm
t Jerusalem, hafa kynnt sér þessi
fyrirhæri í samstarfi við prófessor
Agorohn Katcahlsky t Weiztman-
háskólanum i Rehovom.
Tilraunir þessar hafa leitt í Ijós,
að saltmagnið t frumum Dauða-
hafsins er tvöfalt á við það sem
er i Rauðahafinu. En í Ijós kemur,
að saltmagn þeirra er um 12 falt
á við það sem þekkist í öðrum lif-
andi frumum ■— hvort sem er í
gróðri, dýrum, á landi eða í sió,
— sem allt hefir um það hil sama
saltmagn eins og þekkist í venju-
legu sjóvatni.
Myttdin er af 1.200 tonna egypska skuttogar-
anum „Ras Banas", sem er einn af þremur
sömu tegundar, sem spænska skipasmíðasam-
steypan Vigo hefir nýlega hyggt fyrir stjóm
Egyptálands til úthafsveiða. SkipiS er að sjálf-
sögðu úthúið öllum nýjustu fiskaðgerðarvélum
til hraðfrystingar fisks. Upprunalega var ráð-
gert að þau stunduðu veiðar í lndlandshafi, en
vegna lokunar Suez-skurðarins er húizt við að
þau stundi veiðar úti fyrir S-Afríkuströndum.
Eréttir hafa horizt um að Sovétríkin muni ætla
að afhenda Egyptum nokkra frystitogara, en
hvort þeir verði af minni gerð, 500 tonna hlið-
artogara, eða 3.170 tonna verksmiðjutogarar
með skuttoglagi, er enn ekki kunnugt.
(Fishing News International, jan. ’68).
SJOMANNADAGSBLAÐIÐ 47