Sjómannadagsblaðið - 26.05.1968, Síða 62
Sjómannasfofa
í Keflavík
Þann 31. janúar sl. var opnuð Sjó-
mannastofa í Keflavík, er hlaut nafnið
„Sjómannastofan Vík,“ og með tilkomu
hennar er náð merkum áfanga í þróun-
arsögu byggðarlagsins, en um allmörg
undanfarin ár hefir hugmyndin um sjó-
mannastofu á Suðurnesjum verið ofar-
lega í hugum framfaramanna þar í fé-
lagsmálum, og ýmis félagasamtök með
stúkuna Vík og Sjómannadagsráð í far-
arbroddi unnið vel að þessu menningar-
máli og safnað í sjóði til þess að standa
straum af framkvæmdum.
Við vígslu Sjómannastofunnar voru
viðstaddir fulltrúar félagasamtakanna, er
að þessum framkvæmdum stóðu, auk
annarra gesta. Ræður og árnaðaróskir
fluttu m. a.: Sveinn Jónsson bæjarstjóri,
sr. Björn Jónsson, Ragnar Guðleifsson
form. Verkalýðs- og sjómannafél. Kefla-
víkur, og Jónína Guðjónsdóttir form.
kvennad. S. V. F. I. í Garði, og Guð-
mundur H. Oddsson ‘forseti F. F. S. 1.,
sem færðu Sjómannastofunni gjafir fé-
lagasamtaka sinna.
Sjómannadagsráðið festi kaup á hús-
eigninni Hafnargötu 80 í Keflavík með
velviljuðum stuðningi bæjarráðs Kefla-
víkur, og hafa verið gerðar ýmsar lag-
færingar á húseigninni til þessa verk-
efnis, og eru húsakynni hin smekkleg-
ustu. Hefir þannig verið ráðin lausn á
þeim vanda, að tilfinnanlega hefur skort
athvarf fyrir aðkomusjómenn í Keflavík
á vertíðum, en jafnframt er Sjómanna-
stofan menningartákn fyrir heimasjó-
menn og ber glæsilegan vott um félags-
legan þroska þeirra aðila, sem að þess-
um framkvæmdum hafa unnið.
Frá vígslu Sjómannastofunnar Víkur. Árni R. Ámason, framkvæmdastjóri, hýður gesti vel-
komna og skýrir frá aðdraganda að stofnun sjómannastofunnar.
Ný gerð fiskibáta.
Norska skipabyggingastöðin Bátservice Verft A/S í Mandal, er nú farin að byggja nýja
gerð fiskibáta, til veiða á heimamiðum, sem hafa vakið talsverða athygli. Fyrsti bátur
þessarar gerðar var nefndur Glunt — og er þetta fyrirkomulag af því dregið og nefnt
Glunt-gerðin. Er hún talin svo afbrigðileg frá eldri gerðum, að ekki sé um raunv.eru-
legan samanburð að ræða. — Við byggingu þessarar bátsgerðar hefur v,erið haft sam-
starf við eftirtalin tæknifyrirtæki: Norges tekniske högskole, Norsk Treteknisk Institutt,
Skipsmodeltanken, Norsk Veritas, National Physical Laboratory, Ship Division (Eng-
landi), Food and Agriculture Organization-Fishing vessel division (Ítalíu). Einnig var
leitað samstarfs við starfandi sjómenn, veiðarfæraframleiðendur o. fl. — Við byggingu
þessara báta er notað timbur og samansoðnir stálhlutar. Hliðsjón er höfð af því að skipin
fari vel í sjó, nái góðum hraða, gott vinnupláss sé á dekki og mannaíbúðir hagkvæmar
og þægilegar. — Bátum þessum er ætlað að geta stundað línuveiðar, reknet, togveiðar
og dragnót, ennfremur að veta veitt með minniháttar hringnótum, og auðvelt á að vera
að skipta yfir frá einni veiðiaðferð til annarrar með nokkurra klukkustunda fyrirvara,
ef þörf gerist.
Bátar þessir eiga að byggjast í fjöldaframleiðslu til þess að gera þó ódýrari. Hafa þegar
verið byggðir tveir, sem reynzt hafa mjög vel, og er undirbúningur hafinn að smíði 25
báta á næstunni. (Úr MEA, jan. 1968).
48 SJOMANNADAGSBLAÐIÐ