Sjómannadagsblaðið - 07.06.1970, Síða 35
Guðni Gunnarsson, verksmiðjustjóri.
Geir Magnússon, skrifstofustjóri.
1 áratugi hefur bandaríski markaður-
inn verið aðalsölusvæðið fyrir afurðir ís-
lenzks hraðfrystiiðnaðar, og farið vax-
andi á síðustu árum. Á árinu 1968 voru
fluttar út 34.541 smálestir að verðmæti
1172,5 millj. króna. — Var það 66,3%
heildarútfl. hraðfrystra sjávarafurða frá
íslandi á því ári miðað við verðmæti.
Tveir aðilar önnuðust útflutninginn
—■ Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og
Sjávarafurðadeild SÍS. — Þessir aðilar
starfrækja báðir fiskiðnaðarverksmiðjur
í Bandaríkjunum, Coldwater Sea'food
Corporation (SH) og Iceland Products
Ltd. (SlS), og annast allar sölur á Banda-
ríska markaðnum.
Auk beinnar sölu til stórra kaupenda,
er selt í gegnum umboðsmannakerfi, er
nær til allra fylkja Bandaríkjanna. For-
stjóri Coldwater Seafood Corp. er Þor-
steinn Gíslason verkfræðingur, og Ice-
landic Products Ltd. Othar Hansson
■fiskiðnfræðingur.
Coldwater Seafood Corp. var stofnað
árið 1947 til að annast sölu hraðfrystra
sjávarafurða fyrir SH í Bandaríkjunum,
og er stærsta fyrirtæki íslendinga erlend-
is. — Frá árinu 1967 hefur heildarsala
Coldwater aukizt úr um 18 mill. dollara
í 31.5 mill. árið 1969.
ijr vinnusal verksmiðjunnar, meirihluti starfsfólksins er hörundsdökkt fólk.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 21