Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 43

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 43
^jÓMANNADAGSBLAÐIÐ Gísli J. Ástþórsson 41 SVEIMÉR SEM ÉG BOTNA LENGUR f ÞESSU Það kann að þykja undarlegt uppátæki að fara að vangaveltast um flíkur í svona kallmannlegu riti, en ég er búinn að ganga með þetta innvortis býsna engi og það verður þá að hafa það ef einhver þykist nú , a a rambað á kærkomið tækifæri til þess að setja upp Pykkjusvipinn. Þetta er orðið svo flókið, þetta með P æðaburðinn. Sú var tíðin að spjarimar skildu sauðina ra höfrunum rétt einsog fjaðrimar til dæmis krákuna og Pafagaukinn: þessi var augljóslega erfiðismaður, þama engslaðist búðarlokan og þarna kom béaður jarlinn nnandi í öllu sínu veldi með bindisprjóninn og harða •bbann og nýburstaðan kúluhattinn einsog kórónu oná sjafægðum skallanum. Nú er öldin önnur og eiginlega með einni einustu og hálflúalegri undantekningu sem ég Piun víkja að síðar segja umbúðirnar okkur nánast 1 *ert um innihaldið. Ekki svona á almannafæri hér í eYkjavíkinni, svo mikið er víst. Manneskjan sem kem- Pr á móti manni þennan sólbjarta sumardag eða þennan ^ rungalega vetrardag getur verið að fara til brúðkaups- feislu með kampavíni og kransaköku eða jafnvel til ^undar við sjálfan forsetann suður á Bessastöðum; en uningsins vegna getur hún líka rétteins átt stefnumót ej. skóflu og haka oní einhverjum hitaveituskurðinum egar verið að paufast niðrað höfn og þar oní belginn á 'nhverjum dallinum að bisa við skreiðarpakka; og þetta ru engar ýkjur þannig séð, heldur einungis verið að skerpa ögn á útlínunum í mesta lagi. I skáldsögu Gunnars heitins Benediktssonar „Það brýtur á boðum“, verkalýðs- og baráttu sögu sem kom út fyrir réttum hálfum fimmta áratug, álpast söguhetjan Agla, sem er ung og fönguleg kvensa úr öreigastétt, til þess að ganga að eiga aftur- kreistinginn Sighvat sem er í þokkabót rakinn íhalds- titturog dúndr- andi auðvald. Þeg- ar hún áttar sig, blessunin, og þykir nú mikið liggja við að sýna það svart á hvítu að hún hafi þrátt fyrir allt ekki ætlað að svíkja málstaðinn, þá vindur hún sér bara einarðlega inní fataverslun Marteins Einarssonar, sem þá höndlaði við Laugaveginn, og kaupir sér einarðlega „blá verkamannaföt". Svona einfalt var það og svona skíru máli töluðu tuskurnar á árunum þeim. Ég er ekki að amast við bókinni nema síður sé sem kemur beint frá hjarta höfundar og er þaraðauki alls ekki ómerk samtíð- arheimild frá sjónarhorni hins róttæka kennimanns. Sú kona sem í dag kaupir sér „verkamannaföt" (sem er að vísu nafnbót sem er alveg á síðasta snúningnum) getur aftur á móti sem best átt heimboð hjá bandaríska sendi- herranum, en forveri þess ágæta manns sem prýðir landið í svipinn efndi einsog menn muna kannski til magnaðrar útiveislu uppi við Árbæ þarsem broddborg- urum allt frá heimsfrægum skáldum uppí svakalegustu ráðherra var eiginlega uppálagt að mæta í nankinsgalla. Leppalúði Qórða áratugarins er orðinn spjátrungur þess níunda. Hin ósviknu og óumdeilanlegu verkamannaföt lifðu blómaskeið sitt á síðustu árunum fyrir stríð þegar þau voru líka gædd þeirri náttúru að hlaupa einsog það heit- ir. Reyndar hefði verið nær lagi að orða það þannig að þau hefðu tekið á sprett. Flíkin þurfti að vera að minnstakosti tveimur númerum of stór þegar hún var keypt ef hún átti ekki að kyrkja eigandann þegar eftir fyrsta þvott. Þegarroll ingamir í plássinu voru gerðir upp fyrir sumarið var þeim fyrst dröslað til rakarans þar sem þeir ólánsömustu voru vægðar laust krúnu rakaðir fyrir eina krónu per haus að heita má niðrá fast og síðan voru þeir dregnir til kaupmannsins og keyptur á þá ýmist
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.