Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Síða 55

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Síða 55
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 53 saman. Það voru ótal skemmtilegar sögur af gömlu góðu dögunum sem komu upp í hugann og ekki allar þess eðlis að hæfilegt þætti að setja þær á þrykk! Við Guðmundur áttum sér- lega ánægjulega samvinnu og ég er þakklátur Örlygi Hálfdánarsyni út- gefanda fyrir að hafa átt frumkvæði að okkarsamstarfi. Næsta sjómannabók? Hún er óráð- in. Ég á mikið efni í fórum mínum, bæði um sjómennsku og önnur mál, en er ekki búinn að ákveða hvað ég tek fyrir. Það er á hinn bóginn víst að ég held áfram að skrifa — eftir því sem frístundirnar gefa tilefni til. Og vissulega er sjórinn og sjómennskan alltaf ofarlega í huganum. Mér hefur fundist það ákaflega þægilegt og hvíld í því að skrifa um allt annað en það sem ég fæst við hversdags, flugið og ferðamálin, og ég býst ekki við að ég fari að skrifa um flugið fyrr en ég hætti störfum á þeim vettvangi, en þar er líka efni sem af miklu er að taka. Nei, ég á óhægt með að gera upp á milli minna bóka, mér þykir jafn vænt um þær allar. Það er sannast sagna að bók verður sjaldan læsileg nema höfundinum sjálfum þyki gaman að skrifa hana og finnist vænt um hana eftir því sem líður á verkið. Og sú hefur verið raunin með allar mínarbækur. Fyrir nokkrum árum hitti ég á förnum vegi gamlan togaraskipstjóra sem spurði hvort ég væri alveg hætt- ur að skrifa.'Nei, ekki hélt ég það nú, en það mætti kannski segja að ég væri í hvíld. „Þú ættir að halda þessu áfram, þetta er gott hjá þér,“ sagði hann. Þetta var maður sem ekki skjallaði fólk að óþörfu. Hann horfði á mig þessi gamli togaraskipstjóri og bætti við: „Það hefur komið fyrir að ég hef lesið bækur frá sjónum, en þegar ég Finn þar augljósa villu, eitt- hvað sem ekki getur staðist, þá langar mig mest til að grýta bókinni út í hom — og taka hana aldrei upp aft- ur. Það hefur aldrei hent þegar ég hef lesið bók eftir þig.“ Þetta hefur mér alltaf fundist vera mesta hrós sem ég gæti fengið fyrirbækur mínar. . J.F.Á. LOGNSLÉTTUR SÆR OG BOÐAFALLANDI SÆRÓT „Við íslendingar erum veiði- menn. Þjóðfélag okkar veiði- mannaþjóðfélag. Okkur er hentara að afla mikils en að gera okkur mikil verðmæti úr því, sem að landi berst. Um þetta eru mörg dæmi. ís- lenzkir sjómenn eru miklir afla- menn. Þeir hafa um mörg undan- farin ár verið í fararbroddi í hagnýt- ingu nýrrar veiðitækni; staðið flest- um framar þegar til kemur snar- ræði, kjarkur, greind. Fiskveiðarnar eru líkastar prófi, sem aldrei lýkur. Fiskimennirnir eru sífellt í sviðs- ljósi, brennidepli, sem þjóðin sjálf beinir að þeim. Við heppni þeirra og giftu í störfum eru svo margar vonir okkur tengdar. Bregðist þeim, daprast vonir um bætt lífskjör og áframhaldandi uppbyggingu. Þótt nýjar atvinnugreinar séu í uppsigl- ingu, mun samt sjósókn og land- búnaður enn um langan aldur verða þeir hyrningarsteinar, sem efnahagslegt sjálfstæði íslendinga byggist á. Sveiflur í aflabrögðum og afurðaverði mun því um ófyrir- sjáanlega framtíð hafa áhrif á af- komu landsmanna. Þannig mun þetta verða þótt íjölgun þjóðarinnar orsaki hlutfallslega fækkun í hinum gömlu undirstöðuatvinnugreinum. Því er spáð að svipaður íjöldi lands- manna muni stunda sjóinn á næstu áratugum. Það verða áfram hlutfallslega fáir menn, sem flytja aflann að Iandi, á sólroðnum sumardegi eða um stormasama skammdegisnótt. Því hafið sýnir þeim sem það sækja ólík viðmót. Ógleymanlegar eru sjó- manninum stundir þegar siglt er undir ísland á vomóttu. Himininn og haf renna saman í eina heild, rauða, bláa, gullna. Eða eru það kannske aðrir litir? Einhverjir, sem aðeins eru til um Jónsmessuleytið við Norðurland. Hveijum gleymist líka stjörnubjört nótt á úthafinu, þegar skipið er eins og miðdepill tilverunnar, en umhverfis óendan- leikinn, víðátta hafsins. Kannske varpar rönd af tungli daufu skini á öldurnar og bryddar bárufaldan silfri. Af sjómannslífinu við þessar aðstæður eru fáar frásagnir. Meðan veðurblíðan helzt gerist fátt sögu- legt. En eins og í mannlífinu sjálfu er lognið ekki varanlegt. Áður en varir fer stormurinn að. Kannske verður hann að fárviðri. Lognsléttur særinn verður á stuttri stund að boðafallandi særóti. Gárinn við stein að ólgandi brimi, þar sem holskeflurnar falla með þungum gný og útsogið æðir um flúðir og hleina; ekkert fær staðist ógnarkraft þess nema klettarnir, sem hafið hefur sorfið og fágað um aldaraðir, en jafnvel þeir láta undan um síðir. Hverju fleyi sem nálgast þá strönd er búið grand. Úti á haf- inu rísa brotsjóir, sem mola hvað sem fyrir verður. Særok og bylur byrgja útsýn. Vitaleiftrin hverfa í sortann. Siglingatæki verða óná- kvæm vegna hafrótsins. Það er á slíkum nóttum, sem harðast er barizt. Það er það, sem hver og einn berst fyrir lífi sínu og fyrir því að fá að njóta samvista við fólkið, sem bíður í landi. Sjómaðurinn er við því búinn að takast á við náttúru- öflin í trylltum ham.“ Sveinn Sœmundsson í eftirmála bókar sinnar „I stríði og stór- sjóitm"sem Setberggaf út 1968.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.