Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Side 75

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Side 75
SJOMANNADAGSBLAÐIÐ 73 Jónas Árnason HLJÓMBORÐ HAFNARINNAR FEBRÚAR 1950 olakraninn var önnum kafinn þegar ég kom við hjá honum hérna um daginn klukkan langt gengin sex í stafalogni og frosti. Hann var að flytja kol á milli bingja og það risu svartir mekkir upp í rökkrið þegar sturtaðist úr kjaftinum. Ég var að leið upp á blað að afloknu viðtali sem ég hafði átt við Steingrím Magnússon inni á skrifstofu hans í Fiskhöllinni. Viðtalið hafði orðið dálítið slitrótt vegna þess að Steingrímur þurfti að tala svo mikið við kúnna sína í gegnum gægjugatið fram í búðina. Stundum hélt ég að kúnnarnir ætluðu aldrei að sleppa honum úr gatinu aftur. Það leyndi sér ekki að þeim var það mörgum hverjum engu minna áhugamál að eiga orðastað við Steingrím en verða sér úti um þær yndislegu smálúður og dýrðarýsur þrískærar sem þarna voru á boðstólum. Enda er Steingrímur í Fiskhöllinni, eins og flestir munu vita, allra fisksala skemmtilegastur og gáfaðastur og and- ríkastur. Ég var bæði hress og endurnærður þegar ég gekk af fundi hans út í glitrandi frostlognið og austur hafnarbakkann. Á leiðinni mætti ég nokkrum atvinnu- lausum verkamönnum. Þeir voru daufir í dálkinn. Kola- kraninn var líka daufur í dálkinn. Ég heyrði að hann var orðinn þreyttur. Kolakraninn, blessaður karlinn. Það halda sjálfsagt flestir að hann sé alveg tilfinningalaus — eða hafi að minnsta kosti stáltaugar af því hann er úr stáli. En ég veit betur. Það er langt síðan ég fór að leggja mig fram um að skilja Kolakranann, sálgreina hann. Langt síðan ég komst að þeirri niðurstöðu að hann er miklu viðkvæm- ari en margir þeir sem lægri eru í loftinu. Hann hefurátt sína drauma, fagra drauma sem hafa ekki rætzt frekar en svo margir aðrir fagrir draumar. Ef Davíð Stefánsson hefði átt heima hér í Reykjavík en ekki norður á Akur- eyri væri fyrir löngu búið að yrkja átakanlegt snilldarljóð um Kolakranann. Það er ég viss um. Því að Kolakraninn hefur alla sína kolakranatíð verið að harma hlutskipti sitt. Honum hefuraldrei fundizt hann vera á réttri hillu í lífinu. Sannleikurinn er sá að hann hefur alltaf undir niðri talið það ósamboðið virðingu sinni að vera í kola- vinnu. Og er það allt mikil tragedía. Svo var klukkan orðin sex og dagsverki Kolakranans lokið. Hann gat farið að hvíla sig og láta sig dreyma. Mikið var það gott. Ég hafði stanzað hjá kassaskrifli þar sem stóðu þrír máfar og horfðu út á rennislétta höfnina. Þeir litu til mín rétt sem snöggvast en héldu svo áfram að horfa út á höfn- ina. Ég fór líka að horfa út á höfnina. Við horfðum allir útá höfnina. Á móti okkur, grandamegin hafnarinnar, skinu ljós í lantemum og luktarstaurum og það lágu frá þeim titr- andi rákir eins og þandir strengir yfir til okkar um höfn- ina þvera. Hún var eins og hljómborð í stórum flygli. Ég veit ekki hvað máfunum fannst um þetta, en fyrireyrun- um á mér fóm að óma seiðandi hljómar, seiðandi lýrísk-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.