Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1922, Síða 9

Eimreiðin - 01.09.1922, Síða 9
EIMREIÐIN UPPELDI OG SKÓLAR 201 lesa hann fyrir þeim og benda þeim á, hverju helst sé vert að gefa gaum. Myndirnar notar kennarinn sem mest og skoðar dýrið sjálft, ef þess er kostur. Flestir kennarar, sem taldir eru til betri flokksins, munu kenna þannig; en dæmi eru auðvitað til þess, eða voru að minsta kosti, að kennarinn láti sér nægja að hnoða í börnin svo miklu sem hann kemst yfir af því, sem í bókinni er sagt, og kemur það sér auðvitað vel undir prófin, ef prófdómarinn lítur að eins á kunnáttuna, en það munu Prófdómendur neyðast til að gera, vegna fyrirkomulags þess, sem er á kenslu og prófum. Flestir lærðir kennarar fyrirdæma samt þetta minnisstagl, og fara sumir, að minni hyggju, of langt í þeim efnum, því að sannleikurinn er sá, að það er eins með minnið og margt annað, að það má ofbeita því, og hinsvegar einnig vanrækja það, en minnið er þó eitt af hag- drýgstu sálargáfunum, ef vel er með það farið. Vil eg nú gera grein fyrir, hvernig fyrir mér vakir að kenna t- d. náttúrufræði Kennarinn kemur börnunum í skilning um, að hann ætli að hjálpa þeim til þess að afla sér þekkingar á t. d. dýrun- um, og byrjar auðvitað á líkan hátt og eg gat um hér að framan, til þess að fá að vita, hve fróð börnin eru um þessi efni. Þá ver hann allmiklum tíma í að kenna börnunum að nota bókina og annað, sem hægt er að veita sér til stuðnings yið námið. Eftir það gætir kennarinn þess sem best, að vera tolandinn eða veitandinn, en fær börnin til þess að vera ger- andann eða hinn starfanda aðilja. Þetta er aðalatriðið, sem kennarinn verður að gæta. Kennarinn ver sumum kenslu- stundunum eingöngu til þess að fræða og útskýra, en öðrum Ver hann til þess eins, að láta börnin ræða efnið, spyrja sjálf °9 athuga. Vrði úr þessu frjálsir samtalsfundir. Getur það vel Sengið, ef aginn er góður, en án hans er kensla öll ónýtt. I samtalstímunum kemst kennarinn að því, hvað af efninu er orðið barnanna eign. Hygg eg að það sé sameiginleg reynsla kennara, að einn mesti örðugleikinn í skólunum sje sá, að fá ðörnin til þess að klæða hugsanir sínar í skipulegan búning orðanna, er þau eiga að segja frá einhverju. Vita það allir, að maður verður að kynna sér það efni vel og brjóta heilann Um það, sem maður á að útskýra fyrir öðrum, sérstaklega ef

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.