Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1922, Side 12

Eimreiðin - 01.09.1922, Side 12
204 UPPELDI OG SKÓLAR EIMREIÐIN' ljós, hvert hefði mestan rannsóknardugnað og hvaða efni sér- hverju væri hugljúfast. Börnin mættu einnig fá undirbúnings- tíma, þótt sama efni væri valið handa öllum, en þó mætti það í hvorugu tilfellinu vera altaf. Oðruhvoru ætti prófið að koma að þeim óvörum, bæði munnlegt og skriflegt. Upplestrarleyfi ætti aldrei að gefa. Marga aðra tilbreytni ætti að viðhafa til þess að tryggja það að prófin yrðu uppeldismeðal, en það gætu þau verið frábært, ef rétt væri með þau farið. Þetta próf á hálfs mánaðar fresti á við um þá námsgrein, er þann tímann væri heimalestrarnámsgrein. í öðrum náms- greinum þyrfti varla að prófa eins oft, en þó nauðsynlegt við og við, t. d. á þriggja vikna eða mánaðar fresti. Eg ætlast til að náttúrufræði, landafræði, saga, þjóðfélags- fræði, vinnufræði og siðfræði verði kendar með þessari að- ferð. Eg nefni hér þrjár námsgreinir, sem mörgum mun þykja nýstárlegt að heyra nefndar í sambandi við barnaskóla. Vil eg síðar gera stuttlega grein fyrir, hvað fyrir mér vakir í þessum efnum. Kristin fræði, eða réttara sagt, þroskun trúartilfinningar- innar, sem er vafalaust vandasamasta viðfangsefni skólannar vil eg fara með á sérstakan hátt. Er þá þess að gæta, að byrja á því að innræta börnunum virðingu fyrir guðsorði. Ætti skólinn daglega að byrja starf sitt með því að sunginn er sálmur og eitt barnið les kafla úr biblíunni og bæn. Skyldi verja til þess 15—20 mínútum. Auk þess tæki kennarinn einn tíma vikulega fyrstu 3 árin, til þess að segja börnunum helstu æfiatriði jesú og bestu manna, sem biblían getur um. Síðasta árið tæki hann svo tíma til að fara yfir sögu kristninnar og sögu Gyðinga. Vrði í þessu efni að gæta meiri varkárni en í öðrum námsgreinum í því að missa ekki sjónar á því aðalatriði, að sú djúpa lotning, sem innræt- ist barninu ósjálfrátt, er það lærir Faðirvorið af vörum trú- aðrar móður, særist ekki eða dofni. Eg geri ekki ráð fyriD að kennarinn setji börnunum fyrir í kristnum fræðum, en leyfi þeim að lesa algerlega eftir eigin geðþótta. Hann segir að eins hvað hann tekur fyrir næst, og lætur þau svo sjálfráð, hvort þau lesa eða ekki. Eg hefi svo mikla trú á trúnni eða trúarþörfinni, að ef virðingin er glædd, og engin þvingun er

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.