Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1922, Page 18

Eimreiðin - 01.09.1922, Page 18
ElMREIÐlN Blómin og veðrið. Eítir séra Ólaf Ólafsson frá Hjarðarholli. »Slæmt veður; gott að eiga húsaskjól; best að vera inm. þegar svona er«. Þannig komumst við að orði í byljum og ill' viðrum á vetrum, og gott er að hugsa til þess, að auk þess sem hvert mannsbarn á landi voru á sér húsaskjól, þá er nu og svo komið að víðast eru einhverjir kofar til yfir húsdýr vor, skepnurnar, sem svo margir lifa af. Margir fuglar hypja sig í holur eða afdrep og hýrast þar meðan veðrið líður hjá; rjúpan lætur fenna eða skefla yfir sig o. s. frv. — Grasa, jurta og blómabygðin sefur þá að jafnaði undir fannbreiðu vetrarins, og getur því verið áhyggjulaus um sinn hag. En það kemur líka fyrir, þótt vetur sé genginn og vorið komið, já, jafnvel um hásumarið, að okkur þykir gott að eiga húsaskjól og vera inni er rok og rigningardagar koma. Um hásláttinn geta einatt komið dagar og dagstundir, er varla er fært út úr húsi, er enginn sést í sveitum standa við verk, það er þá tíðum eins og alt sem getur fært sig til sé horfið af yfirborðinu, horfið í eitthvert skjól; enginn fugl sést og ekkert hljóð heyrist nema hvinurinn í Kára, sem syngur þá sinn einsöng. En það er þá, að sumrinu, fleira úti en það, sem getur flutt sig til og flúið í húsaskjól eða holur. 011 blessuð litlu fallegu sumarblómin verða þá að vera úti nætur og daSa hvernig sem veður er, því þau eru staðbundin, föst á öðrum endanum. Þau geta því ekkert farið eða flúið. Þegar húsin hristast af átökum stormsins, og regnið lemur rúðurnar, þá dingla blessuð litlu blómin fram og aftur á sín* um eina veika fæti, svigna niður að jörð, rísa upp, svigna a hinn veginn, snúast eins og í hring o. s. frv. Mann langar til þess, þegar maður situr þá inni í hlýindun- um og logninu, og horfir á þennan ójafna hildarleik milli hins sterka og veika, að fara út og sækja þau, bera þau inn 1

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.