Eimreiðin - 01.09.1922, Síða 22
214
BLÓMIN OG VEÐRIÐ
eimreiðin
svo hitt, hve húsakynm voru lítilfjörleg víðast á fyrri árum og
gluggar smáir.
En hitt gat varla dulist því fólki, sem meiri hluta sólar-
hringsins var að útivinnu innan um blómin, bæði í túnum og
á útjörð, að þau eru ekki, fremur en fólk og fénaður og loft-
þyngdarmælirinn, »vitundar«laus um það, hverju viðrar, eða að
minsta kosti er svo um mörg af þeim.
Þegar regnið skellur á, fer fólkið í skjólföt, og ef mikil
brögð eru að, í hús; geitur og hænsni þjóta í ofboði í kofa
sína, sauðfé í skúta og undir börð, en heimasæturnar, blómin,
sem áður opnuðu allar dyr fyrir biðlunum, fiðrildunum og
sólargeislunum, þau taka sig þá til og loka í skyndi öllum
gáttum, til þess að ekki rigni inn til þeirra. En eg hefi Hka
einhversstaðar rekið mig á lýsingu á blómum, þótt eigi séu
þau hér á landi, sem loka áður en veðrið skellur á; það er
eins og þau viti á sig veðrið; blóm, sem svo haga sér, eru
hinir eiginlegu veðurvitar meðal blómanna; ættu þeir, sem eru
í sveit á sumrum og gaman hafa af blómum, að athuga þetta
að því er íslensk blóm snertir.
Vfir að líta leynir það sér ekki, að öðruvísi liggur á flest-
um blómum er sól skín í heiði, en þegar loft er drungalegt;
það þarf ekki að líta til lofts út um baðstofugluggana í sveit
á sumarmorgni, til þess að fara nær um, hvort væta er eða
regns von; það þarf ekki annað en horfa út á túnið; ef blómin
»sofa«, þarf ekki fleiri vitna við.
En blómin sofa ekki öll á sama hátt, byrgja ekki öll ásjónu
sína eins; sum loka hjá sér, fella blóm og bikarblöðin saman;
önnur líta undan, sveigja blómin til jarðar; sum eru viðkvæm-
ari, finna eins og á sér að regn er í nánd og loka áður en
það kemur; önnur þá fyrst er farið er að rigna, og hvernig hver
blómategund hagar sér í þessu efni, væri bæði gaman og til
fróðleiks að athuga fyrir þá, er til þess hafa tíma og tækferi-
Eg býst nú ekki við að þeir séu margir, sem líta svo a-
að blómin loki hjá sér og feli sig, er illviðri er í nánd, *'l
þess að gefa mönnunum vísbendingu um veðrið, eða til að
hotta á þá að fara í skjólfötin eða hypja sig í hús; og Þ°
væri þetta ekki fráleitara en að hugsa sér aðalhlutverk stjarn-