Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1922, Blaðsíða 58

Eimreiðin - 01.09.1922, Blaðsíða 58
250 RITSJÁ EIMREIÐIN synlegur þeim, sem ekki eru lærðir á þessi efni, lil þess að skilja sjálfa siðaskiftasöguna, og hefði því að réttu lagi átt best heima í upphafi 1- bindis. En í páfadóminum var hér sem annarssfaðar um tvennskonar vald að ræða, sem oft voru á talsvert öndverðum meiði hvort við annað, ver- aldlega vaidið og andlega valdið eða kirkjuvaldið, hvort með sín lög, embættisstétt og valdsvið. Var því ekki furða, þótt oft rækist á. Rekur höfundurinn hvorttveggja, annarsvegar konungsvaldið, alþingi og embættis- menn (hirðstjóra, lögmenn, sýslumenn og hreppstjórn), en hinsvegar kirkjuvaldið, réttargrundvöll þess, tekjugreinir kirkjunnar, stjórn hennar, klausturlifnað o. s. frv. Er þessi inngangur mjög fróðlegur og skýr. Meginefni bókarinnar er því næst skift í 19 kap.. 1. kap. (bls. 56 —117) er mestmegnis um hinar stórkostlegu erfðaþrætur, sem kallaðar hafa verið Vatnsfjarðarmál vegna þess, að einn stærsti þátturinn í þeim varð hin snarpa barátta milli veraldlegra og andlegra um eignarheimild að Vatns- fjarðarstað. Þessi mál voru afskaplega flókin og langvinn, svo að það tekur víst öllum slíkum málum hér fram, og voru þó mörg þeirra all- sæmileg í þessu efni. En því hefir höf. rakið þessi mál svo vandlega hér, að þau ná fram á siðaskiftaöldina, og verða ekki skilin til fulls, nema tekin séu frá rótum. 2. kap. (bls. 118—147) er um ©gmund Pálsson til 1522, eða þar til hann tekur við Skálholtsstóli að fullu, og fær maður hér þegar góða mynd af þessum gerðarlega, ráðríka og nokkuð hrottalega manni, sem örlögin sveifluðu svo afskaplega fram og aftur, upp á hæsta tind valda og auðlegðar og niður í það að verða blindur, sjá sitt helgasta áhuga- mál verða fótum troðið af vinum hans og loks verða fangaður og deyja af hrakningum í fjandmanna höndum. 3. kap. (bls. 147—156) skýrir frá því, er ©gmundur tók við stólnum. Sést hér hve gífurlegt fjársafnið á stólunum var. Telur höf. að Skálholts- bisk. hafi haft, er miðað sé við verðlag fyrir heimsstyrjöldina síðustu, 80—100,000 kr. tekjur, auk sektarfjár, sem gat verið afarmikið, og hefir verið afarmikið á dögum ögmundar. Það þurfti meir en iitla karla i krapinu til að stjórna þessu öllu svo vel færi, enda var Ogmundi ekki dugnaðar og stjórnsemi vant. 4. kap. (bls. 156—181) segir sögu Vatnsfjarðarmála urn daga Ogmundar biskups, og hversu kirkjan, meira með mætti en lögum, sölsaði Vatns- fjörð undir sig. 5. kap. (bls. 182—211) er um yfirgang Ogmundar biskups og siða- vendni, og 6. kap. um ríki og stjórn Ogmundar að öðru leyti og hátt- semi hans. Dregur höfundurinn í þessum tveim kap. upp allskýra mynd af Ogmundi biskupi, og að því er eg hygg, laukrétta. Hann sýnir okkur fyrst og frems't kaþólskan biskup á háveldistíma kirkjunnar, þegar ekkert fékk rönd við reist, einkum hér á landi, þar sem konungsvaldið var fjarri, það eina vald, sem gat verið nokkur hemill á sjálfræði biskupanna. Það þarf siðferðisþrek meira en alment gerist til þess, að geta farið með slíkt vald samviskusamlega. En nú var Ogmundur að vísu enginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.