Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1922, Page 62

Eimreiðin - 01.09.1922, Page 62
254 RITSJÁ eimreiðin í þessu 3. hefti bókarinnar eru raktir aðaldraettir danskra bókmenta frá 1864, og er það gert með því að lýsa nokkrum þeim höfundum, sem mest hefir kveðið að, og eru bestir fulltrúar hverrar stefnu um sig. Fyrst er í inngangi lýst með fáum orðum þeim grundvelli, sem bók- mentir þessa tíma standa á. Hefst svo frásögnin með Georg Brandes og straumhvörfum þeim, sem hann orsakaði með ritum sínum og fyrirlestrum- Svo eru sagðar með fáum orðum æfisögur þeirra I. P. Jacobsens, H. Drachmanns, Hermanns Bang, H. Pontoppidan, og þeim og skáldskap þeirra markaður bás í framþróuninni. Er þetta gert með fáum orðum en á mjög eðlilegan og viðfeldinn hátt, er sýnist bera vott um, að höf. skill1 efni sitt prýðisvel og hafi fastatök á því. Þá er kafli um ljóðakveðskapinn undir aldamótin, og svo á sama hátt, og um hina fyrnefndu höfunda skýr* frá æfi og starfi þeirra Jóhannesar V. Jensen og Jakobs Knudsen. Þá er kafli sem höf. nefnir „mannfélagsmálin í skáldskapnum" og niðurlag. Loks er kafli um vísindin eftir 1864, og er það efni tekið undir þrem Yf‘r' skriftum: heimspeki, sagnfræði og náttúruvísindi, en mjög er það stutt og laggott. Bók þessi er líflega skrifuð og lipurt þýdd, og vel til þess fallin að 3e^a mönnum yfirlit yfir þennan kafla bókmentasögu Dana, og vekja áhuga a því, að kynnast höfundunum nánar. M. 7- TÍUNDA SMÁRIT DANSK-ÍSLENSKA FÉLAGSINS. „Om islandsk tonekunst og musikliv" eftir Holgev Wiehe. A. F. Höst & Söns ForlaS- Kaupmannahöfn. Mat 1921. Rit þetla er aukinn fyrirlestur, sem upphaflega var fluttur í februaf f. á. Er þar stuttlega rakið það, sem áður var sagt á prenti um íslenska tónlisfarsögu, en auk þess eru fluttar nokkrar tilgátur um fortíð hennar- Höf. minnist á „nútíðarkröfur til takts, raddfærslu og hljómfærslu", á nu- tíma bönn samhliða fimmunda og stækkaðra tónskrefa, og lýsir þanmð algerðu þekkingarleysi sínu á tónlist síðustu kynslóðar og 20. aldarinnar- Annars reynir höf. að rita af samúð til íslands. Hann forðast oft að lála ákveðna skoðun í Ijós, og notar eigi sjaldan orðtæki eins og „maaske > „ikke ringe", „vel“ og „næppe“. Stundum falla réttmæt orð og hvetjaná>> en stundum verður misskilnings vart, og ekki dylst það, að höfund' geðjast ekki að harðneskju og stirðleik þeim, sem í íslenskum þjóðlöS' um býr. Hann viðurkennir sérkennileik þeirra, en álítur rímnalögin ein- kennilegust. Þó hafa þessi lög sjaldan önnur séreinkenni en breytiIeSan fallanda.1) Þegar höfundur tekur að lýsa því tímabili í tónlistarsögu Islands, sem mest varð fyrir dönskum áhrifum, þá fer hann að láta skoðanir sínar skýrar í ljós. Hann talar um útlend áhrif, „Evrópu“-áhrif, en nefnir ekki að þar er um dönsk áhrif að ræða, sem reyndar má stundum rekja til 1) Síðar mun eg rita meir um einkenni íslenskra þjóðlaga.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.