Eimreiðin - 01.01.1939, Side 142
128
RITSJA
eimreiðiN
Ljós vottur vaxandi Jiroska eru hin siðrænu hvatningakvæði i þess-
ari nýju ljóðabók Guðmundar Böðvarssonar. líg tek sem dæmi úr kvæð-
inu Yor borg:
„Ó, byggið traust! svo borg vor fái staðið
i blárri fjarlægð timans cndalaust
og jötunþykka hallarmúra hlaðið
á hellubjargsins grunni. — Byggið traust!
og kastið hurtu efnum einskisnýtum,
svo öll vor borg sé risin, sterk og lirein,
úr gráum steini, gulum eða hvitum,
og greypið vora list í jiennan stein“.
Svona yrkir aðeins sá, sem sjálfur er efni i hyggingarmeistara og hefur í
smiðum musteri. Á beztu stundum lifs sins sér hann það risa traust,
voldugt og fagurt, og öllum erfiðleikum og tálmunum er úr vegi rutt.
Sv. S.
Victor Heiser: LÆKNIRINN. Lif og starf i yfir þrjátiu ]>jóðlöndum.
Freysteinn Gunnarsson þýddi. Rvik 1938 (Isafoldarprentsm. h/f). — Bók
þessi kom út i islenzkri þýðingu rétt fyrir jólin í velur og fékk þá
undir eins hinar heztu viðtökur. Þetta eru kaflar úr ævisögu amerísks
læknis, um starf lians í þágu læknavisinda og heilbrigðismála viðsveg-
ar um heim, skemtilega ritaðir og með þeim ævintýrabrag, sem oft ein-
lcennir viðburðaríkt lif manna, sem viða fara og harða baráttu heyja gegn
margvislegum erfiðleikum. Margir l>essara kafla eru heillandi frásagnir
um áhrifamikla viðburði, svo heillandi að jafnast á við beztu skáld-
sögur. Læknar eiga oft erfiða daga, — um það gætu islenzkir læknar borið
ekki síður en annara þjóða, og þessi bók er einmitt frásögn um erfið-
leika og baráttu læknisins við sjúkdóma, vanþekkingu, eiturnautnir, fá-
tækt og allskonar eymd. En hún er jafnframt sagan um mikla sigra og
miklar umbætur. íslenzkir læknar mundu sumir geta sagt eittlivað svip-
að úr sinni reynslu og eiga einnig margir til góða frásagnargáfu. Er
skemst að minnast endurminninga Guðmundar prófessors Hannessonar,
þeirra er hann hefur gefið ágrip af i islenzka útvarpið. Væri ]>ar efni i
fróðlega bók og skemtilegh, sem margan mundi fýsa að kynnast. Su. S.
önnur rit, send Eimreiðinni:
Sigurður Róbertsson: LAGT UPP í LANGA FERÐ. Sögur. Ak. 1938.
Sigurður Einarsson: MIKLIR MENN. Rvik 1938 (ÓI. Erlingsson).
ENDURMINNINGAR JÓNS FRÁ HLÍÐARENDA. Rvik 1939 (ísaf.pr.sm.)-
UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS 1907—1937. Minningarrit. Rvik 1938.
AVE MARIA. Lag eftir Sigvalda Kaldalóns. Rvík 1938.
Ólafur Ótafsson: 14 ÁR í KÍNA. Ak. 1938 (Samb. ísl. kristniboðsfél.)-
Páll Sigurðsson: PÁSKARÆÐA. 3. útg. Rvik 1939 (Snæbj. Jónsson).