Eimreiðin - 01.01.1941, Page 30
16
HAGKERFI OG STJÓRNSIvIPULAG
EIMREIÐIN
Eins og hið kapítaliska hagkerfi er eina hagkerfið, sem lýð-
ræðisskipulagið getur þrifizt undir, eins hlýtur hagkerfi sósíal-
isnians að vera óframkvæmanlegt nema á einræðisgrundvelli.
Og ef til vill eru það þessar tvær andstæður, kapítalismi og
lýðræði annars vegar, sósíalismi og einræði hins vegar, sem
heyja úrslitabaráttu sína í styrjöld þeirri, sem nú geisar.
I þessari grein hefur aðeins verið leitazt við að benda á það,
hvernig hagkerfi og stjórnskipulag er hvað öðru tengt, og í
hverju þeir fara villir vegar sem álíta, að sósíalisminn sé full-
komnun lýðræðisins. Á hitt hefur enginn dómur verið lagður,
hvort stjórnskipulagið, lýðræðið eða einræðið, sé í sjálfu sér
æskilegra. Slíkt verður hver og einn að gera upp við sjálfan
sig. Því er engan veginn svo varið, að mannréttindi þau, sem
lýðræðið eitt getur veitt, eins og prentfrelsi, frelsi til að útbreiða
ákveðnar skoðanir o. s. frv., séu nauðsynlegt skilyrði fyrir
hamingju allra. Skoðana- og ritfrelsi eru gæði, sem aðeins eru
ómissandi fyrir þá tiltölulega fáu, sem löngun hafa og hæfi-
leika til þess að hugsa sjálfstætt. Fjöldinn mundi ekki finna
til þess, þó að réttindi þessi væru afnumin, og telja hag sín-
uin betur borgið, ef önnur réttindi, svo sem örugg atvinna
o. s. frv., væru tryggð. Nokkrar líkur má leiða að því, að rík-
isrekstur atvinnulífsins mundi tryggja almenningi, að vísu ekki
betri, en jafnari afkomu en núverandi þjóðskipulag. Aftur á
móti niundu allar framfarir og nýjungar án efa eiga miklu
erfiðara uppdráttar undir slíku skipulagi, þar sem skriffinnsk-
an skipaði sess einstaklingsframtaksins.
Á hinn bóginn verður því eigi neitað, að gagnrýni sósíalista
á núverandi þjóðskipulagi hefur við nokkur rök að styðjast.
Hin ójafna skipting auðsins veldur þeim aðstöðumun í lífs-
baráttunni, að fullkomlega frjáls samkeppni fær ekki notið
sín. En minna gagngerðar ráðstafanir en fullkomin nýskipun
þjóðfélagsins á sósialistiskum grundvelli gætu þó ráðið bót á
mestu annmörkunum í þessu tilliti, þó að of langt mundi leiða
að fara lengra út í þá sálma hér.