Eimreiðin - 01.01.1941, Side 138
124
SÖFNUNARSJÓÐUR ÍSLANDS
EIMREIÐIN
fyrir sig eða börn sín öðru hverju, þegar ástæður leyfðu. Þó að það
væri smátt i byrjun, þá safnast, þegar saman kemur, og mundi
aukast furðu fljótt, þegar vextir og verðlaun bættust við. Annars
mætti beita ýmsum ráðum til þess að efla deild þessa. Hér skulu
nefnd nokkur, sem mér virðast vel tiltækileg.
1. Erfðafjárskatturinn gengi ekki til ríkissjóðs, heldur væri skipt
i erfingjarentudeild milli erfingja samkvæmt lögerfðum. Þætti mér
sanngjarnt, að skatturinn væri hækkaður að mun með tilliti til þess,
að erfingjarnir ættu að njóta lielmings ársvaxta, sem árlega fara
hækkandi að krónutölu.
2. Foreldrum verði skylt að lögum að leggja ákveðna fjárhæð í
erfingjarentudeildina á nafn livers barns, sem þeim fæðist. Ef þeim
væri það um megn fyrir fátæktar sakir, ætti lilutaðeigandi sveitar-
eða bæjarfélagi að vera skylt að inna fjárhæðina af hendi, án þess
að þetta teldist sveitarskuld.
3. Ríkissjóður gæfi sérhverjum rikisborgara, sem fæðist, fæðing-
argjöf, og væri hún lögð í erfingjarentudeildina.
C. Útborgunardeiklin tekur á móti fé með þeim skilmálum, að
höfuðstótlinn með vöxtum falli til útborgunar 1. júlí það ár, sem
upphaflega er annaðhvort beinlinis tilnefnt eða miðað við, að höf-
uðstóllinn hafi náð tiltekinni upphæð, eða sem síðar er ákveðið með
tveggja ára fyrirvara, enda séu þá full 15 ár liðin frá því, er féð
fyrst var lagt í sjóðinn (lög Söfnunarsjóðsins, 18. gr. b.). Deild þessa
er liaganlegt að nota, þegar menn vilja lcoma einliverju i framkvæmd,
en hafa fé til þess af skornum skammti, svo að það þarf að auka
með vöxtum og vaxtavöxtum, þar til er nægilegt fjármagn er fyrir
hendi til þess að koma þvi í verk, scin til er ætlazt.
Víða hafa íbúðarhús verið reist á prestssetrum fyrir lánsfé úr
ríkissjóði. Samkvæint lögum er fyrningarsjóðum safnað í útborg-
unardeildinni fyrir liús þessi. Sérstakur sjóður fyrir livert þeirra.
Þegar endurbyggja þarf á prestssetrinu, er sjóðurinn tekinn til
notkunar.
Ýmsir sjóðir eru i útborgunardeildinni, sem líklegir eru til að
velta þungum hlössum, þegar þeir eru orðnir svo þroskaðir, að þá
má taka til notkunar.
Þess má geta, að nokkrum sjóðum liefur verið skipt þannig, að
nokkuð er lagt í aðaldeildina, en hitt i útborgunardeildina. Þetta er
lientugt, þegar stofna á til einlivers, sem krefst allmikils fjár i
byrjun, og svo árlegs framlags til starfrækslu. Sem dæmi má nefna,
að sumir áhugasamir menn hafa gefið kirkjum sínum sönglistar-
sjóði. í útborgunardeild hafa þeir lagt til orgelkaupa nokkurn hluta