Eimreiðin - 01.04.1943, Síða 19
KI\1 iikiðin
Við þjóðveginn.
17. júní 1943.
Stríðið og framtíðin.
Á öðrum stað í þessu hefti birtist þýdd grein um Bandaríki
Evrópu. En um þessar mundir er mikið ritað í ýmis tímarit Breta
og Ameríkumanna um vaentanlegt bandalag þjóðanna. Ekkert
dagskrármál er nú rætt af meiri áhuga — næst þvi hvernig
stríðið verði unnið á sem fljótastan og áhrifarikastan hátt —
eins og það, hvernig heiminum verði bezt fyrir komið að styrj-
öldinni lokinni. Nýlega barst mér i hendur aprilhefti tímarits-
ins ,,Free World", sem út kemur í New York, með ýmsum
greinum um þetta efni. Meðal þeirra er einna athyglisverðust
grein eftir enska heimspekinginn Bertrand Russell um ,,nokkur
viðfangsefni að stríðinu loknu". Þessi víðfrægi hugsuður leggur
ýmislegt óvænt til málanna, svo sem það að gera ýmsa hern-
aðarlega mikilvæga staði á hnettinum, eins og t. d. Súez- og Pan-
arna-skurðinn, Gibraltar og Singapore, að alþjóða-eign, enn
fremur um hríð öll þau nýlendusvæði, sem ekki eru enn svo
'angt á veg komin, að íbúar þeirra séu færir um að stjórna sjálfir
roálefnum sínum. Hann leggur einnig til, að allar þjóðir skuli
hafa hlutfallslega jafnan rétt til hráefna heimsins.
Hvernig á svo að koma á alþjóðastjórn eða miðstjórn allra
Þoirra ríkja, sem ganga í bandalag saman að styrjöldinni lok-
innip Forustuna um myndun slíkrar sarristjórnar eiga Bandariki
Norður-Ameriku, Brezka alríkið (þ. e. Stóra-Bretland og brezku
sjálfstjórnarnýlendurnar) , Rússland eða ráðstjórnarríkin og loks
K'na að hafa. Þessi ríki og ríkjasambönd eiga að mynda al-
þjóðabandalag og bjóða svo öðrum ríkjum þátttöku í því, svo
sem efni og ástæður leyfa. En það skilyrði skal sett hverju því
riki, sem fær inngöngu i bandalagið, að það sé annaðhvort lýð-
veldi eða hafi stjórnarskrá, sem samþykkt hefur verið af meiri
Eluta þjóðarinnar samkvæmt atkvæðagreiðslu, sem bandalagið
sjálft laetur fram fara. Annað skilyrði fyrir þátttöku sé það, að
'nnan ríkisins sé ekki neitt fjölmennt landfræðilega afmarkað
bjóðarbrot, sem æski að vera óháð rikinu og sjálfu sér ráðandi.