Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1944, Side 31

Eimreiðin - 01.04.1944, Side 31
KIMREIÍHN KORSETAKOSN. í RANDARÍKJUNUM 95 bundin öfl í þjóðlífinu, sem lenpi höfðu verið að búa um sig undir yfirborðinu. Arið 1860 kjöri Bandáríkjaþjóðin Abraham Lincoln forseta sinn, en felldi Stephen A. Douglas, sem reyndi að sætta Norður- og Suðurríkin út af ágreiningnum um þrælahaldið. Lincoln liélt því aftur á móti fram, að þjóðin gæti ekki verið hvorttveggja, frjálsir menn og þrælar. Þjóðin kaus baráttuna um leið og hún kaus Lincoln, og fáuin mánuðum eftir að hann var kjörinn hafði bún steypt sér út í borgarastyrjöld. Þrisvar hafnaði Bandaríkjaþjóðin einhverjum mesta ræðu- skörungi, sem um getur í sögu hennar, af því hún trúði ekki á rettmæti stefnuskrár hans. Þetta forsetaefni var mælskumaðurinn tuikli, William Jennings Bryan. Kosningahríðir 19. aldarinnar við forsetakjör voru oft ákaf- lega harðar, svo stundum lá við ofbeldi. Bandaríkin voru þá enn ung þjóð eða þjóðasamsteypa, með takmarkaða virðingu fyrir rökræðum og hógværð. En eftir því sem þjóðin óx og þroskaðist, urðu kosningarnar með virðulegri svip. Þjóðin sjálf krefst þess, að þær fari fram með þeirri háttprýði, sem hæfir æðstu og á- byrgðarmestu tignarstöðu samveldisins. Þó er jafnan mikill hiti °g fjör í þessum kosningum, einkum á friðartímum, kosninga- velin margbrotin og margskonar tæki í notkun til að vinna sig- Ur- 1 hverju kjördæmi eru höfuðstöðvar með fjölmennu liði. til þess að undirbúa kosningarnar og stjórna þeim. Ræðumenn tala til fólksins, auglýsingar blasa við á áberandi stöðum, og allt er gert, sem hægt er, til þess að ná eyrum og augum kjósendanna. Þetta er óaðskiljanlegur liluti kosningafyrirkonndagsins í Banda- fíkjunum, máttugt einkenni þess lýðræðis, sem þar ríkir, svo uiáttugt, að jafnvel þegar þjóðin einbeitir sameiginlega kröft- llm, eins og nú, að því að sigra í styrjöldinni, lætur hún ekki falla niður fornar venjur, heldur er nú kosningaliríðin þar að befjast með sama fyrirkomulagi og áður, unz úr því hefur ver- ið skorið, liver eigi að fara með æðsta framkvæmdavald hennar um næsta fjögra ára skeið.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.