Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1944, Side 39

Eimreiðin - 01.04.1944, Side 39
EIMIíEIÐIN HEBflESKA OG ÍSLENZKA 103 niunandi lífsskilyrði, enda bendir kynstofnafræðin í þá átt. En hversu sem þessu liefur verið háttað, má telja víst, að þegar frummaðurinn smám saman fór að læra að tala, hafi talfæri hans ósjálfrátt hermt eftir líkamshreyfingum, einkum handapati, er hann notaði áður til þess að gera sig skiljanlegan og skilja nðra, á líkan hátt og málleysingjar gera enn á vorum dögum. í*essi kenning, hermikenningin, var fyrst sett fram af dr. J. Rae 1862 í þrem ritgerðum um polynesisku, síðar af Sir Richard Paget í ritum hans „Human Speech“ 1930 og „This English“ 1935 (1 fy rri bók lians eru ritgerðir Rae’s endurprentaðar), og '°ks af höfundi þessarar ritgerðar í ritinu „Um frumtungu Indó- gerniana og frumheimkynni“ 1943. I þessari bók eru í fyrsta skipti athugaðar allar indógermanskar frumrætur, 2200 að tölu, 1 einu lagi frá þessu sjónarmiði og tilraun gerð til að byggja UPP heilt kerfi um eftirhermur talfæranna á handapati og lík- anishreyfingum frummannsins. Ef kenning þessi er rétt, ættu þær reglur, er ég lief sett fram um frumtungu Indógermana, einnig að geta átt við allar aðrar tungur veraldarinnar, þó að 'itanlega verði að taka hæfilegt tillit til, að hver þjóðflokkur hefur sín sérkenni í tungutaki, eins og hann hefur það í fram- homu, og að mismunandi vaxtarlag, lögun hauskúpu, kjálka o. s- frv. getur sett sinn sérstaka svip á tungutak hverrar þjóðar. hannig er t. d. áberandi, hve semítiskar þjóðir nota gómhljóð °S kokhljóð meira en t. d. indógermanskar þjóðir. Sir Rich. ^aget liefur, án þess að kunna kínversku, rannsakað orðstofna Ur fornkínversku (mandarínamáli), er lagðir voru fyrir liann vantrúuðum Englendingum á gildi hermikenningarinnar, og lókst lionum, að því er frægur enskur vísindamaður, R. R. ^larett, rektor við Exeter College í Oxford segir í formála að hók Paget’s, „This English“, skýrir frá, að segja fyrir í nál. ^8% tilfellum, liver frummerking væri hvers orðsstofns. Mér hefur dottið í hug að gera slíka rannsókn á nokkurum hebresk- Ulu orðstofnum, án þess að kunna sjálfur málið, til þess að Ma, hvort lögmál liermikenningarinnar sæjust í semítiskum mál- Ur>i. Séra Guðmundur Einarsson, prófastur á Mosfelli í Gríms- 11081,1) er um langt skeið hefur fengizt við liebreskurannsóknir * Sera Guðm. Einarsson ritar mér 5. jan. 1944: nú er ég búinn að fara

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.