Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1944, Page 69

Eimreiðin - 01.04.1944, Page 69
EIMREIÐIN Hún elskaði svo mikið. Smásaga. Ég hafði lagt af stað í ágætu skíðafæri yfir Gilslieiði í von um að ná til Eyrarþorpsins fyrir kvöldið, svo að ég fengi mig ferj- aðan yfir fjörðinn. Ég gisti hjá Sigurjóni gamla á Fossum um nóttina. — Taldi karl úr, að ég legði á heiðina, allsendis hráðókunnugur maðurinn. Það var illhæringur í honum hið efra, sagði hann. Og ekki skyldi ég treysta því um of, að þeir handan lieiðarinnar yrðu lnJ°g viðbragðssnöggir til þess að skjóta mér yfir um, þótt ég kaenii fyrir svartasta myrkrið. Ég kæmist nógu snemma í verið, þó að ég dokaði eftir póstinum, sem færi að morgni. — „Ég held þú ættir að hinkra við, ef þú barasta getur gert þér dvöl- lna hérna að góðu“, mælti hann að lokum. En ég var hinn þver- asti. Ivvaddi ég bónda og þakkaði góðan beina. Hann hafði reynzt ,Iler með ágætum, karlinn, bráðókunnuguin manni af öðru lands- horni. En þetta var aukaatriði. Ferðin gekk stórslysalítið framan af. Mér veittist auðvelt að rata, og ekkert varð úr lirakspá gamla mannsins. Nokkuð var tekið að skyggja, þegar halla fór undan fæti niður vesturhlíð lieiðarinnar. Og ljósin á Eyri urðu æ skýrari. En þegar sízt varði, steyptist ég á höfuðið og kútveltist langar leiðir. Skíðin hrutu livort í sína áttina, annað hrotnaði. Eg fann til nístandi sársauka í hægra fæti. Þegar ég velti mér Vlð til þess að athuga liann, sá ég og fann, að liann var brotinn. a var að reyna að komast niður eftir á fjórum. Það var sýni- ^ega ekki annars kostur. Fékk ég náð skíðunum og voru þau n,er til léttis á niðurleið. — En heldur þótti mér nú fara að árna gamanið, því að liann var hvass af hafi og gerði fjúk. Sársaukinn livarf um stund, og miðaði mér því dálítið áfram, P°tt hann væri beint í fangið. Flöktandi ljósin á ströndinni voru *11er leiðarstjarna, sem lýstu mér gegnurn ofanhríð, myrkur og 8hafrenning, en allt færðist það nú heldur í aukana.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.