Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1946, Side 23

Eimreiðin - 01.10.1946, Side 23
EIMRmitvlN REGNBOGINN 247 á baðstofumæninum í Holtakoti og gelti þessi ósköp. Hann var dimmur og grófur í máli, þessi hundur. Skyldi liann nú koma og svo einhver kannske fara að gá að því, liver væri þarna á ferð- inni? Þar krafsaði hann nú löppunum ofan í mæninn! Gunna litla leit á ný fram til dalsins og svo hentist liún á sprett. Braðum, bráðum slyppi hún fram fyrir hrygginn. Svona, svona, nu mundi hún rétt að segja vera horfin. Bíðum við. Svolítill sprettur enn. Þar var lmn nú sloppin. Hún leit við. Það sást enginn lmndur, enginn baðstofumænir, og geltið, það var orðið að dræmu og letilegu bopsi. Nei, liann Surtur gamli í Holtakoti, hann nennti ekki niður af baðstofunni til þessa að elta eina litla telpu . ■ • Kannske hann líka væri svona góður, greyið. Og svo þaut liun enn af stað. Þegar hún var komin fram á flatirnar neðan við bæinn a Brekku, tók hún allt í einu eftir því, að það stirndi á ána, sem vatt sér í lygnum og djúpum bug fram lijá grónu nesinu. Það var eins og í mesta snatri liefði verið lögð brú úr lýsigulli ævintýranna nulli hárra og bliknaðra bakkanna. Sólin, sólin, og sko. Begn boginn! Hún stóð grafkyrr, lítil telpa á morgni lífsins framnu fyrir ævintýri tilverunnar . . . En bráðum .. . bráðum gengi sólin undir Arnartindinn, — og hvað svo? Þegar sólin var sigin, þá . .. þá . . . Og grannir fæturnir fóru af stað, tifuðu og tifuðu ótt og títt. Fram á Brekkuleitið komst liún, og nú styttist óðum . .. og þó —• hann sýndist ekki nærri eins nálægt, regnboginn, eins og hún liafði búizt við að liann yrði, þegar hún væri komin þarna fram á leitið. Sannarlega varð hún að flýta sér. Sko, sólin átti ekki eftir nema stuttan spöl að Arnartindinum! En þegar hún sneri sér við, var það ekki bara regnboginn, sem vakti atbygli liennar. Þarna komu tveir strákar hlaupandi, strákarnir á Brekku. Þeir liöfðu nokkrum sinnum verið sendir inn að Felli til þess að spyrja að kindum, og einu sinni liafði hún séð þá við kirkju í Múla. Annar stefndi nokkru neðar en hún stóð, hinn talsvert ofar. Voru þeir að elta hana eða hvað? Þeir höguðu sér eins og þegar verið var að hlaupa fvrir 8tygga kind. Hún skalf og nötraði. Þetta voru stórir og sterkir strákar. Hún mundi ekki geta lilaupið þá af sér. Nú beygðu þeir f áttina til bennar. Þeir voru báðir berliöfðaðir, og hárið, rautt °g þvkkt, flaksaðist út í loftið, eins og fax á ótemjum Nú stönz-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.