Eimreiðin - 01.10.1946, Qupperneq 64
288
NÁGRANNAR
J3IMREIÐIN
„Haltu þér saman, manneskja!“ anzaði Torfi og brýndi rödd-
ina. „Eða ætlarðu að fæla selinn burt!“
Oddur tautaði eittbvað við sjálfan sig, en lilýddi þó.
Loksins komust þeir svo nálægt selnum, að Torfi komst í
skotfæri við bann. Hann liæfði og selurinn var steindauður.
„Það er bezt að hlaða hérna vörðu, svo að við finnum selinn
aflur“, mælti Torfi.
Oddur leit á bann spurnaraugum.
„Auðvitað liættum við ekki strax. Við göngum dálítið hérna
umhverfis og mætumst liérna eftir dálitla stund. Verðir þú ein-
hvers var liérna fyrir austan, læturðu mig vita“.
Oddur var ekki ánægður með þetta, en lét þó á engu bera.
Hann var liræddur við' að dvelja lengur úti á ísnum, og auk þess
fann liann glöggar en áður, að Torfi var ofjarl hans í öllu. Hann
skildi líka, að ástæðan til þess að Torfi vildi að þeir skildu, var
aðeins sú, að liann vildi losna við lxann. Hvað þýddi fyrir bann,
vopnlausan, að fara að svipast um eftir selum? Það hlaut Torfa
að vera ljóst.
„Eins og þú villt!“ sagði Oddur, en leit um leið til Torfa
svo tvíræðu augnaráði, að Torfa rann kalt vatn milli skinns og
börunds.
En Torfi lagði af stað án þess að liugsa nánar úl í það. Oddur
eigraði í gagnstæða átt. Er Torfi var horfinn bak við hæð eina,
sneri hann við og gekk þangað sem þeir liöfðu skilið selinn
eftir. Þar settist hann niður og studdi bönd undir kinn.
Hann fór að hugsa um það, sem fyrir liafði komið þessa dagana.
1 raun og veru var þetta allt saman liábölvað. Hann liafði anað
út í lireinustu vitleysu. Hvaða erindi átti liann svo sem út á liaf-
ísinn, þar sem liann gat átt á hættu að týna lífi sínu á hverju
augnabliki! Og livernig var það, að Torfi hagaði sér? Ekki mvndu
þeir lifa til eilífðar á nokkrum selskrokkum! Nei, það var alveg
áreiðanlegt, að liann skyldi aldrei aftur flana úl í svona vit-
leysu.
Hann var reiður við allt og alla. Hann horfði á dauða selinn
með brennandi hatri. Það var eins og öll sú niðurlæging, sem bann
hafði bakað sér með framferði sínu, væri þessnm helskotna sel
að kenna. Hefðu bannsettir selirnir ekki fundið upp á því að
vera að flækjast uppi á ísnum, liefði Torfi farið að ráðum hans.