Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1946, Síða 76

Eimreiðin - 01.10.1946, Síða 76
300 AUSTFIRZKAR SAGNIR III EIMRBIÐIN HaustiS eftir aS ég settist að á Hámundarstöðum um vorið áður, kom óvenju mikið fisk- og síldarlilaup inn á Vopnafjörð, og svo hafði verið einnig liaustið áður. Það var 2. nóvember, að fyrst varð vart við fiskgönguna. Efni átti ég smá til búskapar, og þar sem ég bæði var vanur sjómennsku og liafði mikinn áhuga á sjó- sókn, þótti mér einsætt að nota fisklilaup þetta. Ég útvegaði mér því uppsátur lijá verzlunarstjóra Örum & Wulf á Vopnafirði og fékk aðsetur í Færeyingaskúr, svokölluðum, á fjörubakkanum, rétt utan við verzlunarhúsin. Ég get þess hér, þó að ég viti ekki, hvort það hefur nokkra þýðingu fyrir frásögnina, að það var háttur minn þarna í verbúðinni, þegar ég lagðist til náða á kvöld- in, að láta liöfuðið nema við rúmbríkina. Það gerði ég til þess, að heyra þá betur, eða vérða var við, ef bátur var lireyfður í fjörunni, því einskis eftirbátur vildi ég vera í sjósókninni. Strax fyrstu nóttina í Færeyingaskúrnum dreymdi mig — og fannst það þó í rauninni vera fremur virkileiki en draumur — að inn í búðina kom maður, svartklæddur, þekkilegur og vel bú- inn. Ekkert orð talaði liann til mín, en mér fannst sem sjálfgefið, að ég þyrfti að ganga út með'lionum, sem við og gjörðum. Fylgd- ist ég með lionum niður í fjöruna, og það sem furðulegast var — við gengum áfram rakleitt út á lygnan fjörðinn, sem væri hann slétt grund. Þótti mér það að vísu dálítið kynlegt, en liafði þó um það engin heilabrot. Þangað til gengum við, að ég sá — eða þóttist sjá — mergð fiskjar í sjónum undir fótum mér, enda sá allt til botns. Þegar ég liafði horft á þetta um stund og tekið mið til lands, gengum við á sama liátt til baka; ég þóttist leggjast fyrir í ból mitt, en maðurinn hvarf mér. Um morguninn var mér þessi draumur, eða fyrirburður, í fersku minni og ákvað að fylgja þeirri bendingu, sem mér fannst í lionum felast. Lagði ég lóðir mínar þar, sem ég liafði séð fisk- inn um nóttina. Þegar ég tók að draga, var fiskur á hverjum öngli, svo að ég meir en fyllti hátinn og varð að liafa á seil til þess að koma öllum fiskinum á land. Þess verður þó að geta, að allir bátar fiskuðu vel, en ég þó mest. Það er svo ekki að orðlengja, að þetta endurtók sig á hverri nóttu og degi, — draummaðurinn á nóttunni og mokfiski á dag- inn, þar sem ég lagði lóðir mínar að tilvísun draumanna. Ekki var það alltaf á sama staðnum, sem ég sá fiskinn. En aldrei þurfti
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.