Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1946, Page 91

Eimreiðin - 01.10.1946, Page 91
etmreiðin RITSJÁ 315 bessi bókmenntaiðja, og mætti hann fijarna gera meira í þeirri grein. Hitt er annað mál, að margt í bók- inni er lítill skáldskapur, en því verður að tjalda, sem til er, enda er mest um vert, að sæmileg mynd fáist af þessu tímabili. Má auðvitað enda- laust deila um, hvaða ljóð skuli taka og hver ekki, og ennfremur livaða skáld skuli tekin og hverjum hafnað. Ég saknaði þarna meðal annars Árna Eyjarfjarðarskálds, sem margt fram- bærilegt er eftir. Safnandinn fellir allmikið úr kvæðum, og finnst mér hann þar stundum helzt til djarfur, og varlega skyldi farið í að limlesta kvæði. Verst er, að liann getur þess ekki alltaf. f Bernótusrímum eftir Magnús Jónsson1) skellir liann þrem- or vísuin saman, sinni úr liverri rnnu, eins og samstæðar væru. Réttast tel ég að halda sig við bið opinbera föðurnafn hans. (í bók- ■nni er hann nefndur Magnússon). Eaðir lians var Jón Miðfjarðarskáld, sonur Þorsteins Miðfjarðarskálds, Arnfinnssonar. Samkvæmt formála Bernótusrímna á hann að vera sonur Magnúss Pálssonar Vídalíns, en engin rök höfum vér fyrir þcssu nú nema sögri hans sjálfs, og er hæpið á því að byggja. Sumir vilja eigna sér göf- '■gra faðerni en þcir eiga (sbr. Símon Ualaskáld), og alþýðan er óspör að gcra kotungssoninn að konungssyni, ef hann er gáfaður eða skáld. Annars virðist Magnús liafa verið á þönum eftir tignu faflerni, og er liann eltist, sýnÍ8t hann liafa látið sér Jónsnafnið vel líka, ef marka má Samtíning sr. Eriðriks Eggerz (Lbs. 2005, 4to, bls. 264), en talið sig þá son Jóns Ólafs- sonar varalöginanns. Hagmælskunnar þarf ekki lengra að leita en til föður °g afa. Það getur orkað tvímælis, hvort taka skal þýðingar úr útlendu máli. Útgefandinn hefur hnigið að því ráði, og lield ég það rétt, eins og þá stóð á um skáldskapinn í landinu, þar sem lika seinni ljóðagerð á þýðing- unum mikið upp að inna. Ég liafði ánægju af að lesa bókina, og er hún góð tilbreyting frá þeim „obscurantismus“, sem sum nýtízku- skáldin temja sér á landi liér, þar sem þeir yrkja í óljósum orðum og setningum, sem á víst að tákna ein- hverja skáldlega dulúð, sem ekkert virðist liggja bak við nema tómið eitt. Jóhann Sveinsson. Einar M. Jónsson: BRIM Á SKEIIJ- VM. LjóS. Rvík, 1946. (Vikinps- útgájan). Fyrri ljóðabók Einars M. Jónsson- ar, AS morgni, hlaut almenna liylli, ojt eins hygg ég að fara muni um þessa. Skáldskapurinn er að vísu ekki stórfenglegur, en liann er ljúfur og þýður, rómantískur og fagur og ber þess lítt nierki, að vera eftir sjúkan mann, því að fátt er þar um kvein- stafi eða kvartanir. Kvæðin eru senni- lega nokkuð misgömul, og sést á þeim, að liöf. hefur verið að þrosk- ast, eftir því sem árin liðu, og gegnir furðu rósemi sú og lieiðríkja hugáns, sem hann liefur öðlazt við sína dap- urlegu lífsreynslu. Aftan til í bókinni eru nokkrar snoturlegar þýðingar á kvæðum úr „Gluntarne“, eftir Gunnar Wennerberg. Jakob Jóh. Smári. VÍSNABÓKIN. Rvík 1946.(HlaSbúS). Góð hugmynd liggur til grundvall- ar fyrir útkomu þessarar bókar: að safna í eitt nokkrum vinsælustu vís- unum og þulunum úr íslenzkum al-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.