Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1948, Page 12

Eimreiðin - 01.04.1948, Page 12
92 VIÐ ÞJÓÐVEGINN EIMREIÐIN Góða veðrið átti sinn þátt i að gera þenna dag minnisstæðan. Bjartur og fagur hvelfdist blár himinn yfir hið víðáttumikla umhverfi, og útsýnið af Arnarhóli naut sín vel í nóttlaUsri „voraldar veröld“ kvöldsins, með Snæfellsjökul í vestri, gulli krýndan undir sól að sjá. Það er Ijóst, að þjóðhátíðin 17. júní er smámsaman að fá á sig fast og hefðbundið form, og það er kostur, að nokkur festa komist á um tilhögun hennar. Forseti íslands sækir hana með því að leggja blómsveig að fótstalli styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Kveðju hans til fólksins var tekið með óblöndnum fögnuði og hann hylltur ákaflega. Ávarp Fjallkonunnar var snjallt og glæsilega flutt, og fjallkonan tiginmannleg í íslenzka skautbúningnum, er hún flutti það af svölum alþingishússins, enda var það enginn viðvaningur, sem að þessu sinni kom fram í gervi Fjallkonunnar, leikkonan Anna Borg. Að þessum tveim atriðum loknum flutti forsætis- ráðherrann ræðu, sem hafði þann kost að vera í ýmsu hrein- skilin og djarfleg stefnuskrárræða, þar sem dregnar voru fastar línur með tilliti til þjóðarinnar í heild, en án tillits til dægurþrass og flokkastreitu. Mætti slíkum ræðum gjarnan fjölga með stjórnmálamönnum vorum. Þessi þrjú atriði, ásamt með keppni íþróttamanna og blóm- sveig þeirra á leiði Jóns Sigurðssonar, eru orðin fastir liðir á dagskrá 17. júní hátíðahaldanna í höfuðstaðnum. Og því skyldum vér svo ekki horfa glöð og vongóð fram á veginn í vorbirtu vors unga lýðveldis, á sama hátt og mann- fjöldinn naut birtunnar og sólskinsins i langdeginu um Jóns- messuleytið, meðan haldin var þjóðhátíðin 17. júní í höfuð- stað landsins í dag? Ekki þarf að leita langt aftur i tímann — og bera saman kjör þjóðarinnar þá og nú — til þess að ganga úr skugga um, að mikið hafi áunnizt til bóta. Þjóðar- veilur verða að vísu ekki máðar út á skömmum tíma. Fyrir réttum hundrað árum skrifaði Jón SiQ' Fyrir hundrað urðsson Páli sagnfræðingi Melsteð bréf, árum — og nú! sem oftar, og kvartáði undan skapbrestum landa sinna, kvað ergilegast við þá, þessar „subjectivu gönur“, sem þeim væri svo gjarnt á að fara u „Það kemur af einsetunum, og að þeir nenna ekki aö fylQla

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.