Eimreiðin - 01.04.1948, Blaðsíða 43
eimreiðin
LÍFGRÖS OG GRÆÐIJURTIR
123 ,
því að steikja hana óskrælda. Hún hefur mikið að geyma af
stein- og málmefnum, sem eru nauðsynleg fyrir líkamann, svo
sem fosfór, magnesium, kalsium, sodium, silicium, járni o. fl.
Hráar kartöflur eru ágætt útvortis meðal við gikt og brtma á
hörundi, segja lífgrasafræðingar, og kemur það heim við reynslu
ýmissa hér á landi.
Nú vil ég biðja góðfúsan lesanda að muna vel, að þessi grein
er ekki neinn áróður fyrir trúna á lífgrös og græðijurtir, lieldur
aðeins stutt frásögn, studd með nokkrum innlendum og erlendum
dæmum. En mætti hún verða til þess, að menn reyndu fremur
en áður að prófa sig áfram um nytsemi og lækningakraft íslenzkra
jurta, þá er tilgangi hennar náð. Agætt er að gera þetta í samráði
við reynda lækna, þegar um sjúkdóma og lækningar við þeim
er að ræða, og enda sjálfsagt. Læknarnir eru nú einu sinni þeir
menn, sem undir það eru búnir og að því starfa að lækna líkam-
legar meinsemdir meðbræðra sinna. Og engum sanngjörmun
manni dettur í hug að neita því, að þeir séu ekki allra manna
faerastir til slíkra starfa. Hinsvegar hefur margvísleg þekking
um lækningakraft vissra jurta hlaðizt upp hjá alþýðu allra alda,
þekking, sem grundvallast á athugun og reynslu kynslóðanna. Og
margt af þeirri reynslu hafa sjálfir vísindamennirnir sannprófað,
svo að leitt hefur jafnvel til mjög merkra uppgötvana í læknis-
fræði, svo sem í ýmsum öðrum vísindagreinum. Trúin á lífgrös
°g græðijurtir er enn mjög útbreidd meðal almennings. Og ég
efast um, að úr henni dragi nokkuð að ráði. Enda er þess ekki
að vænta og ekki ákjósanlegt, ef árangurinn af þessari trú er
góður. En um það eru til mörg dæmi á vorum dögum.
Sveinn SigurSsson.
*
^tbreiðsla tungumála.
^Enska er töluS af 220 milljónum manna. Þýzku tala 90 milljónir, spönaku
inilljónir, frönsku 45 milljónir og ítölsku 45 milljónir manna.
Talið er, að kunnugt sé um 6760 tungumál, en af þeim eru aóeins 2296
tUngumál enn töluð; hin eru týnd mál eða dauð, sem kallað er.
Enska er talin allra tungna orðauðugusL í henni eru 455.000 orð.
(Úr tímar. Die Lupe, BerttJ.