Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1948, Blaðsíða 85

Eimreiðin - 01.04.1948, Blaðsíða 85
eimreeðin RITSJÁ 165 NÝ ÁSTANDSSAGA. Félagi kona, hin nýja skáldsaga Kristmanns Guð- tnundssonar, gerist á hernámsárunum í höfuðborg Islands. Eggert bóka- vörður er giftur ungri og myndar- legri konu, en sambúðin er fremur stirð, og svo fer, að hann verður að sjá af henni í hermann. Það, sem sættir bókavörðinn verst við þetta ömurlega hlutskipti, er barnið þeirra hjóna, ung dóttir, sem hann ann heitt. En móðirin getur haldið barninu samkvæmt íslenzkum lögum, enda þótt hún sé sek. Svo er framhald 6ögunnar lýsing á lífi hins yfirgefna hókavarðar, baráttu hans við sjálfan sig og félaga konu í ýmsum útgáfum, sem yfirleitt reynast honum ótryggir ofjarlar og fullnægja ekki draumum hans. Þetta er saga um föðurást, en jafnframt sagan um baráttuna milli holdsins og andans í viðskiptum manns og konu, hvort við annað, og lýkur með þessari ályktun: „Konan, sem þú elskar, er ekki brúSurin, ei heldur sú, er þú syrgir, né hin, er þig dreymir um! Hún er geislinn, sem snerti hjarta þitt áður en þú girntist líkama ástmeyjar þinnar. Og hún verður þín, ef þér auðnast að fórna gleði þinni fyrir hamingju þeirrar, sem ann þér“. Kristmann Guðmundsson er rýn- tnn á sálarlíf persóna sinna og gerir heiðarlegar tilraunir til að kryfja til Wergjar dulin rök lífsins. Leyndar- dómur ástarinnar er honum einkum Eugleikið viðfangsefni í þessari sögu. Stíll hann og framsagnarháttur er tilgerðarlaus og eðlilegur. Hann seil- tst sjaldan eftir öfguni og afkáraleg- Um gífuryrðum, til þess að vekja með tví eftirtekt. Slíkt er honum fjarri 8kapi. Hann er stundum berorður um 8amlíf karla og kvenna, virðist kippa bsr í kynið til enska skáldsins D. H. Lawrence, enda þýtt á íslenzku eina af berorðustu sögum lians. Krist- mann lýsir „vampyrs“eðlinu oft með sterkum litum. Hann á það til að vera hárfínn og innsær á viðkvæm- ustu kenndir mannlegs hugar. Og lýsingar lians, i þessari bók, á sam- bandi föður og barns eru áhrifaríkar og gerðar af djúpum skilningi. Sv. s. A PAGEANT OF OLD SCANDINA- VIA. Edited by Henry Goddard Leach. New York 1946 (Princeton Universily Press jor The American- Scandinavian Foundation). Meðal hinna mörgu ágætisrita um norræn efni, sem menningarstofnunin „Tlie American-Scandinavian Foundation“ hefur gefið út, skipar ofannefnt safn- rit heiðursrúm, og er sérstætt að sama skapi, — eina rit af því tagi um nor- rænar bókmenntir á enska tungu. Það ber einnig órækt vitni víðtæk- um lærdómi og vandvirkni útgefand- ans, dr. Henry Goddard Leach, fyrrv. forscta stofnunarinnar, sem er gagn- fróður og glöggskyggn í miðaldafræð- um, eins og hann hefur áður sýnt með hinu prýðilega riti sínu, Angevin Britain and Scandinavia (1921), um riddarasögur vorar. Fylgir hann þessu nýja þýðinga- safni sínu úr hlaði með gagnorðum, fræðimannlegmn og snjöllum for- mála. Niðurskipun efnisins er einnig hin skennntilegasta, en það er í þess- um köflum: „Goðin“, „Fornaldar- hetjur", „fsland“, „Noregur“, „Vest- ureyjar“, „Grænland“, „Vínland hið góða“, „Danmörk", „Svíþjóð", „Ann- ar skáldskapur“, „Riddarasögur og kvæði“. Hér er því farið eldi mikið víð- lendi, enda nær úrval það, sem ritið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.