Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1948, Page 36

Eimreiðin - 01.04.1948, Page 36
116 HESTARNIR HEIMA EIMREIÐIN Nú stóð svo á, að enginn hestur var til taks nema Víkingur gamli, og ekki hafði hann batnað með aldrinum. Var henni þá sagt, að ekki væri heima nema einn gamalklár, rammstaður og níðlatur, og gengi auk þess aftur á bak! „Rammstaður, níðlatur“, endurtók gamla konan fyrirlitlega. „Ég hef aldrei komið á bak lötum hesti“. „Jæja, þá færðu smjör- þefinn af því núna“, sagði einhver stríðnislega, og svo var Vík- ingur leiddur heim og lagður á hann söðull. Gamla konan sveiflaði sér léttilega í söðulinn. Bað hún mig að koma í fang sér, því hún ætlaði að reiða mig. Gerði ég það, með hálfum liuga þó, því ég bjóst ekki við neinni skemmtireið. En nú brá svo við, að Víkingur gamli skeiðaði úr hlaði og brá ekki fyrir sig neinum af sínum gömlu kenjum, og ef ég man rétt, hafði Þórunn þó hvorki svipu né spotta til að slá í hann. Ef hún vildi að hann færi hraðar, þá bara hottaði hún á hann og iðaði öll í söðlinum, því hún var fjörkona mikil og mjög líkamalétt. Fannst mér sem fjör gömlu konunnar myndi seitla út í hverja taug á hestinum. Er nií ekki að orðlengja það, að Víkingur gamli fór á kostum með okkur alla leið og stanzaði ekki fyrr en á hlaðinu á Seljamýri. En þá lét Þórunn mig af baki og stökk svo sjálf úr söðlinum, létt eins og unglamb. Ég var bæði hissa og lirifin af þessu ferðalagi, en Þórunn hló og sagði að þarna gæti ég séð, hvort það væri ekki satt, sem hún hefði sagt áður en við fórum að heiman. Mér fannst þetta ganga kraftaverki næst, og þarf varla að taka það fram, að eins vel gekk á heimleiðinni, eða jafnvel betur. Næstu skipti, sem ég fór á bak Víkingi, var hann jafn kenjóttur og hann liafði alltaf verið. VI. Brúnn hans Trausta var Ijómandi skemmtilegur reiðhestur, si- viljugur, fleygivakur og laus við alla hrekki. Hann var frekar lítill vexti, eins og móðir hans hafði verið, og áttum við margar yndisstundir saman. Hann var lítið notaður til áburðar, en næst- um eingöngu sem reiðhestur, Mér er það enn í minni, hve svipur hans var göfugur og höfuðið fagurt. Hann bar mig til kirkjunnar, þegar ég fermdist, og hann var síðasti hesturinn, sem ég kom a

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.