Eimreiðin - 01.04.1948, Side 53
eimreiðin
DANSLEIKUR OG ÁST
133
hvort öðru órjúfandi böndum. Nú var lionum ljóst, að framkoma
hennar hafði einungis stjórnazt af augnabliks eftirlæti á heitum,
meðfæddum ástríðum.
Skyndilega var hann rifinn upp úr þessum hugleiðingum, því
að einhver sló á öxl hans og sagði:
„Halló, félagi! Skelfing ertu niðurdreginn. Það á þó ekki vel
við að setja upp jarðarfararsvip á svona gleðistundum. Ha?“
Einar leit upp og brosti dauflega. Þetta var nágranni hans,
Jón í Hlíð, ungur og athafnasamur bóndi, en veikur fyrir brögðum
Bakkusar. Nú var hann, sem oftar, undir álirifum, þótt Einar
veitti því eigi eftirtekt í fyr8tu.
„Jæja. Komdu nú vinur. Við skulum fá okkur kaffi og hressa
UPR á sálina“. Að svo mæltu tók hann undir handlegg Einars
og dró hann með sér inn í kaffistofuna.
„Kaffi fyrir tvo, ljúfan“, kallaði Jón til þernunnar, um leið og
hann hlassaði sér niður á stól við eitt borðið. Kaffið kom að
vörmu spori, ásamt hrokuðum diski af sætum kökum.
„Þetta liefur verið fjörugt ball, lagsmaður. Ekki satt, ha?“
8agði Jón og stakk upp í sig lieilli prinsessuköku.
Þögn.
„Nú, það er naumast að þú ert líflegur. Jæja, vinurinn. Ég
skal hressa þig upp. Hvernig lízt þér á þessa, ha? Við sláum tvær
flugur í einu höggi með því að tæma hana í kvöld. — Nei, nei.
Vertu nú bara rólegur. Lofaðu mér að tala. Sjáðu nú til. 1 fvrsta
lagi skemmtum við okkar eigin persónu, hristum af okkur slen
hversdagsleikans og verðum sem nýir menn. Nú, og í öðru lagi
styðjum við og styrkjum ríkissjóðinn um leið. Ekki satt, ha?
Hvar værum við staddir, ef allir segðu stopp og hættu að drekka?
Já, hvernig lieldurðu að færi, ef hornsteini þjóðfélag6Íns væri
hurtu kippt? Ha, ha-ha-ha. Það eru bara hvorki meira né minna
en 40 milljónir. Já, hugsaðu þér, lagsmaður, 40 milljónir, sem
krumlur ríkisins draga upp úr vasa okkar brennivínsbeserkjanna.
Já, það er lireint ekki svo lítið, lagsmaður. En hvað hljótum við
svo fyrir hinn gullna skerf okkar í þátttöku þjóðarbúsins? Það
er dálítið eftirtektarvert. Okkur er úthúðað eins og kvikindum,
°g þeir örlátustu jafnvel settir í tugthúsið. Þetta er atliyglisvert,
8eSÍ ég, vegna þess, að í raun réttri ætti að krýna allar fyllibyttur
lárviðarkransi og sæma riddarakrossi, því að sannleikurinn er