Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1948, Síða 79

Eimreiðin - 01.04.1948, Síða 79
eimreiðin 159 SÝN nóg að þú veitir mér blessun þína. Þú verður að fullkomna hamingju okkar með því að taka með þessum þínum heil- ögu höndum á móti eiginmanni mínum einnig inn á heimili þitt. Leyf mér að leiða hann fyrir l5ig“. „Já, fylgdu honum inn til niín“, svaraði ég. örfá augnablik liðu, og svo heyrði ég fótatak, sem ég kann- aðist vel við — og rödd, sem sagði: „Kumó, hvemig líður þér?“ Ég hrökk við um leið og ég hneigði mig og hrópaði: „Dada!“ Hemangini fór að lilæja og sagði: „Þú kallar hann ennþá eldri hróður þinn, en þá vitleysu skaltu ekki gera lengur! Kall- aðu hann yngri bróður þinn og stríddu honum eins og hann á skilið, því hann hefur gengið að eiga mig, yngri systur þína“. Þá skildi ég loks, hvað gerzt hafði. Maðurinn minn hafði ekki framið syndina hræðilegu. Hann hafði verið frelsaður frá því ódæði. Ég vissi, að Dada hafði ákveð- ið að kvænast aldrei. Og þar sem móðir okkar var dáin, var ekki um neina ósk að ræða frá þeirri hlið, til þess að fá hann ofan af þessu áformi sínu. En ég, systir hans, liafði í neyð minni orðið til þess, að honum snerist hugur. Hann hafði kvongazt til þess að bjarga mér. Gleðitárin runnu niður kinn- ar mínar, án þess ég gæti að því gert. Dada strauk liár mitt mjúklega, og Hemangini vafði mig örmum í fögnuði sínum. Um kvöldið lá ég vakandi í rúmi mínu og beið komu eig- inmanns míns, í ákafri eftir- væntingu, langt fram á nótt. Ég átti erfitt með að gera mér grein fyrir, hvemig hann myndi taka vonbrigðum sínum og þeirri niðurlægingu, sem hann hafði orðið fyrir svo óvænt. Það var komið langt fram yfir miðnætti, þegar dyrnar að herbergi mínu voru loks opn- aðar, hægt og hljóðlega. Ég reis upp í rúminu og hlustaði. Þetta var fótatak mannsins míns. Hjartað sló ákaft í brjósti mér, þegar hann gekk að rúminu og tók í hönd mína. „Bróðir þinn hefur bjargað mér frá glötun“, sagði hann. „Ég hrapaði stöðugt dýpra og dýpra, í augnabliks vitfirringu. Ég var blindaður orðinn, og mér virtust öll sund lokuð. Guð einn veit, live þv-'": mér var í huga daginn seui ég lagði af stað með fljótsbátnum. Storm-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.