Eimreiðin - 01.01.1955, Síða 63
EIMREIÐIN
ÖLÝGINN SAGÐI MÉR
51
Jú, Bína viðurkennir, að hann muni hafa verið eitthvað
kenndur. Hún var komin upp og sá hann ekki. — Jú, þau
höfðu víst eitthvað rifizt. — Nei, ekkert sérstaklega. — Hvort
hann hefði slegið hana? — Almáttugur, nei, hvernig gat
henni dottið það í hug?
~~ Jú, þau höfðu haft nokkuð hátt. — Hvort hún væri
alveg viss um, að hann hefði ekki stjakað við henni. — Já,
auðvitað væri hún viss um það. — Hvernig vissi hún það,
fyrst hún var komin upp? — Vissi. Það gerði hann Ófeigur
aldrei!
h>ær þvæla um þetta fram og aftur. Bína viðurkennir að
hau hafi haft hátt, séra Ófeigur meira að segja bölvað. En
ai’ið hana Bertu! Nei, það hafði hann Ófeigur ekki gert.
Hanna reynir öll ráð. Hún ber það meira að segja blákalt
Uf)P á Bínu, að hún hafi sagt Jónínu á Grund, að presturinn
afi barið frúna, svo hljóðin í henni hafi heyrzt út á götu.
]na er með grátstafinn í kverkunum. — Helvítis kerlingar-
ú’untan! Hún lýgur því — lýgur því! Hún sagði aldrei, að
ijóðin í henni hefðu heyrzt út á götu! Hún hafði kannske
Sa§t, að rifrildið í þeim hefði geta'ð heyrzt út á götu.
Hanna reynir að spyrja Bínu út í ferðalag prestsfrúar-
lr,r*ar inn í Innri-Vík í gær, en það er ekki hægt að koma
nHnu tauti við stelpuna. Hún er farin að háskæla. Seinast
1 ýbur hún á dyr og skilur eftir hálfan kaffibollann.
Hrúin í Gerði andvarpar mæðulega. — Það er naumast að
Helpan er staffírug! Hún hafði þó getað kjaftað í hana
únínu á Grund. — En nú er eins og stungið hefði verið
UPP í hana.
Hanna tekur viðbragð. — Stungið upp í---------. Þarna kom
skýringin! Auðvitað höfðu prestshjónin mútað stelpugálunni
fú þess að halda sér saman. Það var svo sem skiljanlegt, að
esturinn kærði sig ekki um, að ósóminn bærist út — og
abki frúin heldur, fyrst hún hafði gert svo lítið úr sér að
kyssa á vöndinn. — Auðvitað höfðu þau stungið einhverju
að stelpunni!
Hanna í Gerði tekur pottinn af maskínunni. Hún þarf að
regða sér inn til Soffíu í Vík. Kannske hún gangi líka við
Gróu kaupfélagsstjórans í leiðinni--------------.
(Niðurlag næst).