Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1956, Side 9

Eimreiðin - 01.07.1956, Side 9
EIMKEIÐIN JúU—september 1956 LXII. ár 3. hefti. Martin A. Hansen eftir Helga Sæmundsson. I. Danir hafa séð á bak tveimur sérstæðustu og persónuleg- ustu rithöfundum sínum þessarar aldar með skjótum og óvænt- um hætti: Kaj Munk var myrtur af Þjóðverjum aðfaranótt 5- janúar 1944 aðeins hálffimmtugur að aldri, og Martin A. Hansen lézt ári eldri í sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn 27. júní 1 fyrra. Skáldklerkurinn í Vedersö er löngu kunnur íslend- lngum og einvörðungu nefndur hér til samanburðar á dauðs- falli hins. Martin A. Hansen þarf aftur á móti að kynna. Engin af bókum hans hefur enn verið þýdd á íslenzku. Þó er skáldskapur hans eitt hið athyglisverðasta í norrænum bók- nrenntum síðustu tveggja áratuga, og veldur því í senn list °g boðun. Hann var arftaki Jóhannesar V. Jensens sem sjálf- stæðasti og svipmesti skáldsagnahöfundur Dana, leitandi nppreisnarmaður, er fjallaði um átök hins gamla og nýja, en hvarf samt til upphafs síns í niðurstöðunni að lokinni þrumuræðunni. Jóhannes V. Jensen gerði Himmerland víð- ^rægt, en Martin A. Hansen Austur-Sjáland. Sú ályktun hrekkur þó skammt til skýringar. Nær mun sanni, að báðir hafi speglað bemskubyggðina til að bregða upp mynd ætt- landsins og heimsins og láta örlög fólksins í átthögunum, Earáttu þess og andlega þróun standa í tákni atburðanna, sem reynast mannkyninu eftirminnilegastir í sögu samtíðarinnar. II. Martin A. Hansen var sjálenzkur húsmannssonur og fædd- lst í Ströby á Stevns 20. ágúst 1909. Hann virtist borinn til

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.