Eimreiðin - 01.07.1956, Page 11
MARTIN A. HANSEN
163
arins sú, að kommúnisminn
gasti leyst vanda mannanna
með árangri farsældar og
gleði. Bókin fjallar um gamla
og nýja tímann í ljósaskipt-
um kreppuáranna. Nú dæmist
hún aðeins fyrirlieit annars
°g meira. Höfundurinn kann
skenrmtilega vel til verks af
jafnungum manni, bygging-
m og stíllinn er óræk sönnun
þess, að skáldið hyggur djarft
°g veit, hvað það getur. Fram-
haldið, „Kolonien“, kom
tveimur árum síðar og olli
Ookkrum vonbrigðum. Mar-
ún A. Hansen sigraðist af
efanum áður en hann lauk verkinu og missti trúna á, að
kommúnisminn myndi fyrirheit framtíðarinnar. Sagan renn-
Ur út í sandinn, höfundurinn týnir slóðinni og virðist eins
°g berskjaldaður á víðavangi. En hann var reynslunni ríkari
°g óx af verkefninu, þrátt fyrir allt. Raunar tók það hann
þjögur ár að komast aftur til byggða, og þá bar hann á ný
heim í átthagana. Árið 1941 sendi hann frá sér skáldsöguna
>*Jonatans rejse“ og vann úrslitasigur. Endurskoðuð útgáfa
hennar frá 1950 ræður bót á göllum ýmissa aukaatriða og er
grundvöllur þeirrar umsagnar, að bókin sé einstakt afrek.
hlér kemur til sögunnar kímni Martins A. Hansens, því að
alvaran er gamansöm og gamansemin alvarleg. Hitt skiptir
þó öllu máli, að höfundurinn flytur tímabæran boðskap af
hstrænni snilli. Efnið er gamalt og alkunnugt, sagan er um
Slrhð, sem nær fjandanum á vald sitt, setur hann í flösku og læt-
Ur hann lúta boði sínu og banni, svo að Sæmundur fróði gerði
Varla betur. En bókin er ekki aðeins um þetta. Sagan er
faknræn. Borgin og sveitin takast á, höfundurinn ber fyrir
hrjósti það, sem mótað hefur skoðanir hans, lífstrú og andlega
þróun. Sveitadrengurinn frá Austur-Sjálandi er orðinn heims-
borgari og gerir örlög sín og samtíðar sinnar að þungamiðju
Martin A. Hansen